

Cesc Fàbregas segir að hann einbeiti sér alfarið að starfi sínu hjá Como þrátt fyrir orðróm um að hann gæti tekið við Chelsea.
Chelsea er í leit að nýjum stjóra eftir að Liam Rosenior var rekinn eftir slakt gengi, þar sem liðið tapaði fimm leikjum í röð án þess að skora. Calum McFarlane stýrir liðinu til bráðabirgða út tímabilið.
Fàbregas, sem hefur vakið athygli í sínu fyrsta þjálfarastarfi hjá Como, hefur verið nefndur sem mögulegur arftaki. Spánverjinn, sem lék með Chelsea á árunum 2014 til 2019 og vann meðal annars ensku úrvalsdeildina tvisvar, segir þó að hugur hans sé annars staðar.
„Það væri galið að hugsa um eitthvað annað en næstu leiki,“ sagði Fàbregas. Hann vill einbeita sér að því að koma Como í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Como er í fimmta sæti deildarinnar og á fimm leiki eftir.