fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Besta deildin: Breiðablik mistókst að vinna Keflavík – KA sótti gott stig á Akranes

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 19:53

Markús Páll.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var lítið um mörk í tveimur leikjum 3. umferðar Bestu deildar karla í dag þar sem bæði einvígin enduðu án sigurvegara.

Á Akranesi skildu ÍA og KA jöfn, 1-1. Heimamenn komust yfir á 32. mínútu þegar Markús Páll Ellertsson skoraði og virtist ætla að tryggja Skagamönnum sigur. KA-menn gáfust þó ekki upp og jöfnuðu metin á 70. mínútu þegar Diego Montiel fann leiðina í netið. Lokakaflinn var opinn en hvorugu liðinu tókst að skora sigurmarkið.

ÍA með tvö stig eftir þrjá leiki en þetta var fyrsta stig KA í sumar.

Í Keflavík var enn minna um tilþrif þegar Keflavík og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli, 0-0. Breiðablik var meira með boltann en heimamenn vörðust vel og héldu hreinu.

Breiðablik með fimm stig eftir þrjár umferðir en þetta var fyrsta stig Keflavíkur í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Kveður City með hjartnæmu myndbandi – 19 stórir titlar á farsælum ferli

Kveður City með hjartnæmu myndbandi – 19 stórir titlar á farsælum ferli
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Skiptar skoðanir eru innan herbúða Manchester United

Skiptar skoðanir eru innan herbúða Manchester United
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina
433Sport
Í gær

Newcastle horfir til framherjans sem Bayern ætlar ekki að kaupa

Newcastle horfir til framherjans sem Bayern ætlar ekki að kaupa
433Sport
Í gær

Bayern og Milan berjast um sama framherjann – Getur komið frítt í sumar

Bayern og Milan berjast um sama framherjann – Getur komið frítt í sumar