fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Jafnvægi í rekstrinum í Úlfarársdal: Tekjur lækkuðu og útgjöld jukust til muna – Samt var hagnaður á rekstri

433
Föstudaginn 27. febrúar 2026 09:00

Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rekstur á knattspyrnudeild Fram virðist í góðu jafnvægi. Samkvæmt rekstrarreikningi nam hagnaður félagsins á árinu 11,3 millj. kr. Eigið fé í árslok var nam 88,5 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

Flestir tekjuliðir deildarinnar aukast á milli ára fyrir utan styrki sem fer úr 205 milljónum í 93 milljónir. Á árinu 2024 erfði félagið verulega fjármuni frá fyrrum félaga í Fram.

Fram seldi leikmenn fyrir 25 milljónir króna á síðasta ári. Tekjur deildarinnar voru 250 milljónir og lækka um 24 milljónir á milli ára.

Meira:
Svart ský yfir rekstrinum í Garðabæ: Laun hækkuðu rosalega – Tapið á síðasta ári yfir 80 milljónir
Blómlegur rekstur á Hlíðarenda: Aukning í tekjum og góður hagnaður – Laun hækka talsvert á milli ára
Góðæri á Akranesi: Góður hagnaður þrátt fyrir miklar launahækkanir á milli ára

Útgjöld deildarinnar aukast á milli ára og voru 242 milljónir en voru tæpar 200 milljónir árið á undan. Launagreiðslur voru 188 milljónir og hækka um 25 milljónir á milli ára. Fram var með lið í Bestu deild karla og kvenna síðasta sumar.

Skuldir deildarinnar eru ekki miklar eða rétt rúmar 16 milljónir króna. Félagið fékk 25 milljóna króna styrk frá aðalstjórn félagsins á liðnu ári, sem er ögn minna en árið á undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá