fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Svart ský yfir rekstrinum í Garðabæ: Laun hækkuðu rosalega – Tapið á síðasta ári yfir 80 milljónir

433
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reksturinn hjá knattspyrnudeild Stjörnunnar var þungur á síðasta ári og tapið var mikið. Tap Knattspyrnudeildar U.M.F. Stjörnunnar á árinu 2025 nam rúmum 80 milljónum króna.

Bókfært eigið fé í árslok er kr. 33.544 þús. og er eiginfjárhlutfall félagsins 31,93%.

Besta deildin Stjarnan
Mynd: DV/KSJ

Tekjur deildarinnar voru 464 milljónir og lækkuðu um tæpar 100 milljónir á milli ára, karlalið Stjörnunnar var ekki í Evrópu á síðast ári og munar um minna.

Meira:
Blómlegur rekstur á Hlíðarenda: Aukning í tekjum og góður hagnaður – Laun hækka talsvert á milli ára
Góðæri á Akranesi: Góður hagnaður þrátt fyrir miklar launahækkanir á milli ára

Árið 2025 komst karlaliðið inn í Evrópu og því viðbúið að tekjurnar á þessu ári hækki aftur.

Þrátt fyrir miklu minni tekjur gaf Stjarnan hressilega í og voru launagreiðslur félagsins 390 milljónir og hækkuðu hressilega á milli ára eða um rúmar 80 milljónir sem er það sama og liðið tapaði í rekstri sínum. Heldargjöld félagsins voru 540 milljónir og hækkuðu um 50 milljónir á milli ára.

Skammtímaskuldir deildarinnar eru tæpar 72 milljónir. Í lok árs skuldaði deildin 4,5 milljón í ógreidd laun og gjöld tengd því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá