Knattspyrnusamfélagið á Norðaustur-Englandi varð fyrir áfalli á dögunum þegar leikmaðurinn Curtis Coppen var bráðkvaddur aðeins þrítugur að aldri.
Curtis, sem var öflugur varnarmaður, var á mála hjá North Shields en hafði spilað fyrir fjölda liða í utandeildunum á þessu svæði Englands.
Fólk sem minnist hans segir hann hafa verið afar vinamargan og góðan mann. Fyrrum félög hans sem og andstæðingar lýsa honum sem hinum besta manni.