Jumah Bah, 19 ára gamall miðvörður Manchester City, er að ganga í raðir Nice í Frakklandi á láni.
Bah gekk í raðir City í janúar á þessu ári frá Real Valladolid en var hann strax lánaður út til Lens.
Hann verður áfram í Frakklandi því hann er sem fyrr segir að ganga í raðir Nice. Lyon reyndi einnig að fá hann en án árangurs.
Bah er fæddur í Síerra Leóne og hefur spilað tvo A-landsleiki fyrir þjóð sína.
🚨🔴⚫️ Juma Bah from Manchester City to OGC Nice, here we go! Verbal agreement done for the defender to join the club on loan.
Olympique Lyon and OGC Nice wanted Bah but the player has decided to proceed with Nice. pic.twitter.com/rhJJcpqdU3
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 24, 2025