fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Þetta er það jákvæða sem Arne Slot sér nú í leik Liverpool

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. desember 2025 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, lagði áherslu á jákvæðu punktana eftir 2–0 sigur á West Ham og 1–1 jafntefli gegn Sunderland, þrátt fyrir að Jamie Carragher hafi kallað frammistöðuna á Anfield skref aftur á bak.

Slot sagði sjónarhornið annað, þar sem liðið hefði lagt mikla áherslu á að styrkja varnarleikinn eftir að hafa fengið á sig þrjú mörk gegn Nottingham Forest og fjögur gegn PSV.

„Fjórir punktar úr tveimur leikjum eru allt annað en síðustu tveir heimaleikir þar sem við töpuðum báðum og fengum á okkur sjö mörk,“ s
agði Slot.

„Í báðum leikjunum núna vorum við nálægt því að halda hreinu.“

Hann hrósaði því að andstæðingarnir hefðu ekki nýtt þau fáu færi sem þeir fengu. „West Ham fékk eitt tækifæri og skoraði ekki. Sama í þessum leik, Sunderland skoraði, en það var ekki úr færi.“

Slot tók einnig fram að nýir leikmenn hefðu stutt liðið vel. „Florian Wirtz er augljóst dæmi, en líka Milos Kerkez, og Alex Isak skoraði sitt fyrsta mark.“

Hann viðurkenndi þó að enn væri verk að vinna: „Við erum ekki komin þangað sem við viljum vera.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær