fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026
433Sport

Orðinn raunhæfur möguleiki á að hann kveðji óvænt strax eftir áramót

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 5. desember 2025 08:30

Jean-Philippe Mateta í leik gegn Íslandi á Laugardalsvelli . Mynd DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Crystal Palace er að íhuga það alvarlega að selja Jean-Philippe Mateta í janúarglugganum, ef marka má The Sun.

Mateta hefur verið góður á tímabilinu og er með 7 mörk í 14 leikjum í ensku úrvalsdeildinni, en viðræður um nýjan samning hafa siglt í strand. Núverandi samningur hans rennur út 2027.

Palace er brennt eftir stöðuna sem kom upp með fyrirliðann Marc Guehi, sem er á leið frítt frá félaginu næsta sumar, enda að verða samningslaus. Það er því góður tími í janúar til að fá sanngjarna upphæð fyrir Mateta.

Framherjinn hefur til að mynda verið orðaður við stórlið AC Milan á Ítalíu.

Mateta gekk til liðs við Palace frá Mainz árið 2022, fyrst á láni og svo endanlega. Hann átti erfitt uppdráttar til að byrja með á Englandi en hefur blómstrað með tímanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vill ekki segja til um hvort færslan á Instagram hafi kostað hann sekt

Vill ekki segja til um hvort færslan á Instagram hafi kostað hann sekt
433Sport
Í gær

Ronaldo áfram í fýlu og skrópaði í leikinn í gær

Ronaldo áfram í fýlu og skrópaði í leikinn í gær
433Sport
Í gær

Maguire nefnir dæmi af æfingasvæði United sem hefur hrifið hann undanfarið

Maguire nefnir dæmi af æfingasvæði United sem hefur hrifið hann undanfarið
433Sport
Í gær

Kallar eftir því að Liverpool og Aston Villa nái samkomulagi

Kallar eftir því að Liverpool og Aston Villa nái samkomulagi
433Sport
Í gær

Guardiola segist ekki ætla að þegja þrátt fyrir gagnrýni

Guardiola segist ekki ætla að þegja þrátt fyrir gagnrýni
433Sport
Í gær

David Beckham sagður í algjöru sjokki yfir nýjasta útspili sonarins

David Beckham sagður í algjöru sjokki yfir nýjasta útspili sonarins