fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Arne Slot ræðir alvarlega stöðu Harvey Elliott

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. desember 2025 15:30

Harvey Elliott fagnar marki / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að hann sé meðvitaður um að Harvey Elliott hafi fengið lítið að spila hjá Aston Villa, en viðurkennir að hann hafi ekki verið í miklu sambandi við miðjumanninn.

Elliott er á láni hjá Villa en hefur aðeins spilað 97 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Aðspurður um erfiða byrjun leikmannsins í Birmingham sagði Slot. „Ég hef ekki haft mikið samband við hann, aðeins einu sinni eða tvisvar, og það var fyrir útileikinn gegn Feyenoord og eftir hann.“

„Ég veit auðvitað alveg hvernig staðan er. Ég held að ég viti hvernig honum líður, en það eru Villa sem ættu að svara spurningum um hans spilatíma.“

Elliott var lánaður til Aston Villa í sumar með það fyrir augum að fá reglulegan leik­tíma, en hann hefur hingað til átt erfitt með að vinna sér sæti í liðinu hjá Unai Emery.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær