
Erling Braut Haaland skoraði sitt hundraðasta mark í ensku úrvalsdeildinni fyrir Manchester City gegn Fulham í gær.
City vann nauman 4-5 sigur í ótrúlegum leik, en liðið var komið í 1-5 áður en Fulham tók við sér í seinni hálfleik.
Haaland hefur verið ótrúlegur fyrir City undanfarin ár en segir sjálfur að það sé eðlilegt í liðinu sem hann spilar með.
„Ég er stoltur af því að ná 100 mörkum í ensku úrvalseildinni, en þegar þú ert framherji Manchester City áttu að skila frábærum tölum. Þetta er vinnan mín. Fólk ætti að gagnrýna mig mikið ef ég skora ekki,“ sagði hann eftir leik.