fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Halldór útskýrir nánar ummæli sín sem vöktu gríðarlega athygli – „Svo er það sett saman á einhvern hátt og þá er auðvelt að klippa þetta út“

433
Laugardaginn 29. nóvember 2025 07:30

Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni á 433.is.

Eins og flestir vita var Halldór látinn fara frá Blikum í haust, aðeins ári eftir að hafa gert liðið að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari.

„Auðvitað kom þessi ákvörðun á óvart. Sérstaklega í ljósi þess að ég held að árangurinn heilt yfir hafi verið nokkuð ásættanlegur. Við urðum Íslandsmeistarar, unnum deildabikarinn, tryggjum okkur svo í deildarkeppni Evrópu, þess vegna kom þetta á óvart,“ sagði Halldór.

Hann greindi frá því í viðtali við Fótbolta.net á dögunum að ónefndur aðili í kringum félagið hafi reynt að búa til óróa innan hópsins. Leikmenn létu hann vita af þessu.

video
play-sharp-fill

„Ég átta mig líka á að í þessum bransa snýst þetta um að vinna leiki og við unnum ekki nógu marga leiki. Svo nefndi ég líka að ég hafi heyrt frá leikmönnum að það hafi verið kannað hvernig klefinn er og hvort þjálfarateymið væri eitthvað að missa þetta. Það svar var bara í samhengi við þá spurningu, hvort þetta hafi komið manni á óvart.

Ég var ekki reiður, bara svekktur. Það er ýmislegt sem hefur gengið á í félaginu í langan tíma. Hlutir sem hafa einhvern veginn ekki verið ræddir og kannski var þetta þægilegasta lausnin,“ sagði Halldór en vildi ekki fara nánar fara út í þá hluti.

Halldór var spurður nánar út í ummæli sín um ónefnda aðilann sem reyndi að skapa óróa.

„Það var alls ekki tilgangurinn að fara að finna einhverja blóraböggla. Það var fínt að setja upp smá samkvæmisleik fyrir ykkur. Það var ekki tilgangurinn. Kom þetta á óvart? Já, en út af þessu þá var þetta einhvers staðar þarna.

Þetta er mjög langt viðtal og það fer fram og til baka. Svo er það sett saman á einhvern hátt og þá er auðvelt að klippa þetta út. Ég í alvörunni áttaði mig ekki á að þetta yrði það sem menn tækju út úr þessu,“ sagði Halldór.

„Leikmenn koma til mín og segja mér þetta þá sneri það að einhverjum einstaklingi en hvort hann talaði fyrir sjálfan sig eða einhvern annan sagði ég ekkert um. Það voru ekki mín orð. Þetta sneri bara að svari mínu um hvort þetta hafi komið mér á óvart,“ útskýrði hann nánar.

Umræðan í heild er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Trump og hans fólk segja að HM verði öruggasti viðburður sögunnar

Trump og hans fólk segja að HM verði öruggasti viðburður sögunnar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Skiptar skoðanir eru innan herbúða Manchester United

Skiptar skoðanir eru innan herbúða Manchester United
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð
433Sport
Í gær

Fréttir frá Egyptalandi um heilsuna hjá Salah ekki góðar

Fréttir frá Egyptalandi um heilsuna hjá Salah ekki góðar
433Sport
Í gær

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“
Hide picture