Antonio Conte, stjóri Napoli, hefur staðfest það að Khvicha Kvaratskhelia hafi beðið um sölu frá félaginu.
Kvaratskhelia hefur margoft verið orðaður við stórlið í Evrópu en hann hefur verið virkilega öflugur í Serie A undanfarin tvö ár eða svo.
Liverpool er á meðal þeirra liða sem sýna leikmanninum áhuga og þá er Barcelona einnig nefnt til sögunnar.
Napoli er talið vilja um 70 milljónir evra fyrir georgíska landsliðsmanninn en óvíst er hvort hann kveðji í janúar eða í sumar.
,,Kvara hefur beðið um sölu. Félagið sagði mér frá því og hann staðfesti það svo sjálfur,“ sagði Conte.
,,Ég er mjög vinsvikinn því undanfarna sex mánuði hefur hann verið aðalmaðurinn í þessu verkefni og ég hef reynt að vinna með félaginu í að framlengja hans samning.“