KSí segir mjög jákvæð samtöl átt sér stað um það að fara í enduruppbyggingu á Laugardalsvelli. Þetta kemur fram í fundargerð sambandsins.
Þar segir að samtalið hafi verið gott við þá sem koma að málinu en þar er um að ræða ríkið og Reykjavíkurborg.
Ekki er komið á hreint hvað á að gera en krafan um að byggja nýjan völl nær líklega ekki í gegn á næstu árum.
„Málefni Laugardalsvallar. Formaður KSÍ fór yfir stöðu varðandi LDV. Mjög jákvætt samtal hefur átt sér stað við hagsmunaaðila. Stjórn samþykkti tillögu formanns KSÍ vegna viljayfirlýsingar Ríkis, Reykjavíkurborgar, KSÍ og FRÍ um endurbætur og uppbyggingu á
þjóðaraðstöðu til framtíðar fyrir knattspyrnu og frjálsar íþróttir og felur honum ásamt settum framkvæmdastjóra að halda áfram með málið,“ sagði í fundargerð KSÓ
Þorvaldur Örlygsson og Jörundur Áki Sveinsson fá það verkefni að halda áfram með málið en í tæp tíu ár hefur verið umræða um að byggja nýjan völl.