Það er óhætt að segja að margir knattspyrnuáhugamenn hafi verið ansi hissa yfir nýjasta innslagi Britney Spears á Instagram.
Britney er ansi virk á samfélagsmiðlinum en þar er hún með 42,3 milljónir fylgjenda. Í nýjustu færslu sinni birtir hún alls konar myndir og myndbönd, þar sem skilaboðin eru að „ofbeldi sé aldrei svarið.“
Þar eru myndbönd af henni dansa, mynd af hesti og hvaðeina. Það sem mesta athygli hefur þó vakið er myndband af slagsmálum á leik AZ Alkmaar og West Ham í Sambandsdeildinni fyrir ári síðan.
Þar má sjá hinn 58 ára gamla Chris Knoll, stuðningsmann West Ham, mæta fjölda stuðningsmanna AZ Alkmaar. Knoll varð eins konar þjóðhetja í kjölfarið en hann varði aðra stuðningsmenn West Ham með kjafti og klóm frá blóðheitum Hollendingunum.
Enskir fjölmiðlar vekja athygli á myndbandinu af Knoll sem Britney endurbirti en það sem vekur kannski enn meiri athygli er að því hefur nú verið eytt úr syrpu Britney í færslunni. Færslan innihélt tíu myndir og myndbönd, þar á meðal því af Knoll, en nú eru aðeins níu.
Netverjar voru gáttaðir í kjölfar þess að myndbandið af Knoll birtist í færslu Britney.
„Ég þurfti að athuga hvort þetta væri rétt. Hvað í fjandanum?“ skrifaði einn og margir tóku í sama streng.
Hér að neðan má sjá færslu Britney en eins og fram kemur ofar hefur hún eytt myndbandinu af slagsmálunum á leik AZ Alkmaar og West Ham og hetjudáðum Knoll.
View this post on Instagram