fbpx
Föstudagur 13.desember 2024
433Sport

Gunnar Heiðar hefur verulegar áhyggjur af ástandinu í Eyjum og ákvað að flytja burt – „Þetta er algjört þrot ef ég á að segja eins og er“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 3. október 2023 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, fyrrum leikmaður ÍBV og fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu segir það sorglegt að fylgjast með þeirri þróun sem hafi átt sér stað í kringum knattspyrnuna í Eyjum.

Gunnar Heiðar flutti frá Vestmannaeyjum í sumar og segir að það hafi spilað stóra rullu í ákvörðun sinni að barna og unglingastarfið í kringum fótboltann sé ekki gott. Hann óttast þá vegferð sem félagið er á.

„Ég var að vona að þetta topic kæmi ekki, en ég hef gríðarlegar áhyggjur af knattspyrnunni í Eyjum í heild sinni. Það er einn af þessum factorum af hverju ég er að flytja í burtu,“ segir Gunnar Heiðar í hlaðvarpsþættinum Chess after dark.

Gunnar Heiðar tók við þjálfun Njarðvíkur í sumar og tókst að bjarga félaginu frá falli úr Lengjudeildini. Hann segist eiga efnilega stráka í fótbolta og þess vegna ákvað að flytja upp á land.

„Ég á stráka sem eru efnilegir í fótbolta, mér hefur fundist það síðustu fimm ár þetta vera á leið þar sem þetta er komið núna. Sögulega séð er þetta eitt lélegasta tímabil sem ÍBV hefur átt,“ segir Gunnar Heiðar.

Karlalið félagsins er í fallsæti fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, kvennalið félagsins féll úr Bestu deildinni og KFS féll úr 3 deild karla.

„Kvennaliðið er fallið, KFS er fallið. Það sem ég horfi mikið á er barna og unglingastarfið í Eyjum, menn hafa verið sofandi á verðinum þarna.“

Gríðarleg stemming er í kringum handboltann í Eyjum en aðeins örfáar hræður virðast mæta á leiki í fótboltanum. „Undanfarin ár hefur myndast stemming í kringum handboltann, svo hefur verið barningur þarna tengdur fjármunum frá klúbbnum og hvernig á að skipta þessu. Ég held að allir séu sammála því að fótboltinn ætti að fá aðeins meira, það eru fleiri inn á vellinum. Það er bara rökrétt.“

„Ég hef verið í kringum þetta í mörg ár, þó ég stjórni engu þá reynir maður að koma með reynslu inn í þetta. Svo tók ég við KFS á sínum tíma og reyndi að hjálpa til, brúa bilið frá yngri flokka starfi upp í meistaraflokk. Mér fannst það takast vel á sínum tíma, mér fannst kominn grunnur til að halda þessu áfram.“

Hann segir þjálfun í yngri flokkum ábótavant. „Svo hefur mér fundist það síðustu ár, við höfum verið sofandi með barna og unglingastarfið. Ég held að þetta sé sögulega lélegt, sérstaklega strákaliðin. Þeir eru í neðstu sætunum í öllum flokkum sem er grátlegt. Það er ekki búið að sinna þeim. Það er búið að fækka þjálfurum þarna, það var ráðinn yfirþjálfari yngri flokka og hann endar á því að taka við tveimur flokkum því það fást ekki fleiri þjálfarar. Ég held að það hafi vantað sjö þjálfara í lok tímabils til að halda þessu gangandi.“

„Þetta er algjört þrot ef ég á að segja eins og er.“

Hann telur að ekki margir leikmenn muni skila sér upp í meistaraflokk á næstu árum en leggur til að félagið setji fjármuni í yngri flokka frekar en að eyða þeim í erlenda leikmenn.

„Við erum með marga Eyjamenn i liðinu en ég sé engan koma upp næstu 5-7 árin, þá er þetta ekki sjálfbært. Klúbbar eins og ÍBV, mér finnst að það eigi að leggja meiri peninga í barnastarfið. Setja peninga í innviði og fá góða þjálfara, að þurfa alltaf að borga mikla peninga í erlenda leikmenn. Einhverja Youtube leikmenn sem koma korter í mót, nýta þennan pening í innviði og yngri flokka. Að við séum að fá krakka upp, karla og kvennamegin. Þá koma fleiri á völlinn og fyrirtæki koma með pening í þetta.“

„Fótboltaforystan var á öðru máli en við flest og ég held að við séum á þessum stað út af því. Handboltinn, þeir gera þetta öðruvísi. Þar eru margir gamlir leikmenn í kringum liðið, í sjálfboðavinnu, í stjórn eða þjálfun. Þeir vita upp á hár hvað þarf að gera, þeir eru í kringum yngri flokka og starfið. Þetta er hringrás og heldur þeim gildum sem ÍBV á að standa fyrir. Í fótboltanum er kannski einn fyrrum leikmaður sem er í kringum þetta, það er sorglegt. Forystan hefur ýtt öðrum frá.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Yfirgefur Manchester fyrir Liverpool

Yfirgefur Manchester fyrir Liverpool
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Mesta efnið í Árbænum skrifar undir

Mesta efnið í Árbænum skrifar undir
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sancho elskar lífið hjá Chelsea

Sancho elskar lífið hjá Chelsea
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Samfélagsmiðlastjörnu bjargað af fjölskylduhundinum eftir atlögu innbrotsþjófa

Samfélagsmiðlastjörnu bjargað af fjölskylduhundinum eftir atlögu innbrotsþjófa
433Sport
Í gær

Nauðgunar mál Mbappe ekki lengur á borði saksóknara

Nauðgunar mál Mbappe ekki lengur á borði saksóknara
433Sport
Í gær

Útskýrir hvað gerðist þegar urðað var yfir hann í beinni – „Ég var ekki reiður“

Útskýrir hvað gerðist þegar urðað var yfir hann í beinni – „Ég var ekki reiður“