fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Davíð sakar Árbæinga um áreitni í sumar – „Varð til þess að ég ferðaðist ekki til Reykjavíkur“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 2. nóvember 2022 12:37

Davíð til vinstri og Eyþór til hægri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Guðmundsson, knattspyrnudómari hefur sent bréf á fjölmiðla en Vísir.is fjallaði fyrst um málið. Davíð dæmdi leiks Skallagríms og FC Árbær í 4 deild karla í sumar.

Davíð hefur sterk tengsl við Skallagrím en þar lék hann lengi og er stuðningsmaður félagsins. Forráðamenn FC Árbær voru verulega óhressir með framgöngu Davíðs sem dómara í leiknum.

Var hann sakaður um að hafa verið hlutdrægur en um var að ræða fyrsta leik liðanna í Íslandsmóti sumarsins. „Eins og margir vita þá fyrr í sumar dæmdi ég leik Skallagríms og FC Árbær. Í fréttum eftir leikinn þá var birt að ég væri skráður í Skallagrím og hafði æft með klúbbnum í þó mörg ár. Ég gengst við því að þess vitandi átti ég alls ekki að vera neinn partur af þessum leik nema áhorfandi. En það sem að því fylgdi er ástæða þess að ég skrifa þetta,“ skrifar Davíð.

Davíð segist hafa orðið fyrir miklu áreiti vegna málsins og ekki þorað til Reykjavíkur. „Vegna þessa myndbirtinga hef ég orðið fyrir áróðri fólks sem ég ekki þekki er ég hef verið á opinberum stöðum, meðal annars verið sagt mig vera svindlara og svikara. Ég bý ekki á höfuðborgarsvæðinu en áróður eftir áróður varð til þess að ég ferðaðist ekki til Reykjavíkur í nokkra mánuði vegna hræðslu um að verða fyrir einhverjum áreiti almennings og átti ég erfitt með einbeitingu er ég var við vinnu.“

Eyþór Ólafsson formaður knattspyrnufélagsins Árbær gagnrýndi Davíð harkalega í viðtali sem birtist í maí og má lesa hérna.

Bréfið sem Davíð ritaði:
Komið þið sæl, eins og margir vita þá fyrr í sumar dæmdi ég leik Skallagríms og FC Árbær. Í fréttum eftir leikinn þá var birt að ég væri skráður í Skallagrím og hafði æft með klúbbnum í þó mörg ár. Ég gengst við því að þess vitandi átti ég alls ekki að vera neinn partur af þessum leik nema áhorfandi. En það sem að því fylgdi er ástæða þess að ég skrifa þetta.

Nokkrum dögum og vikum eftir leikinn þá byrjaði að hrynja inn á Instagram reikning minn „vinabeiðnir“ frá FC Árbæ sem að ég tók ekki mikið til mín. En einnig þá fékk ég „vinabeiðnir“ frá fólki sem að tengdist klúbbnum eða tengdust leikmönnum FC Árbæs á einhvern hátt. Fylgjandi þessu er að stutt var í seinni leik FC Árbæs og Skallagríms þá koma inn á Instagram reikningin þeirra myndbirtingar af mér í treyju merktur Skallagrím og leikmönnum Árbæs. Ekki skeði þetta einu sinni, ekki tvisvar heldur þrisvar sinnum, birtu þeir myndir á reikning sínum til að þeirra sögn „promóta“ leikinn. Meðfylgjandi myndir sína þetta.

Einnig birta þeir á „story“ hjá sér niðrandi orð til Skallagríms og mín. Þeir hafa birt allt þetta án leyfis frá mér. Vegna þessa myndbirtinga hef ég orðið fyrir áróðri fólks sem ég ekki þekki er ég hef verið á opinberum stöðum, meðal annars verið sagt mig vera svindlara og svikara. Ég bý ekki á höfuðborgarsvæðinu en áróður eftir áróður varð til þess að ég ferðaðist ekki til Reykjavíkur í nokkra mánuði vegna hræðslu um að verða fyrir einhverjum áreiti almennings og átti ég erfitt með einbeitingu er ég var við vinnu.

En ég var ekki sá eini sem varð fyrir barðinu á þeim heldur heyrði ég að það urðu 2 strákar sem spila með Skallagrím fyrir slæmum áróðri frá FC Árbæ, þeir gerðu Skallagrím að athlægi með því að birta mig undir þeirra merkjum sem og setja inn niðrandi orð í þeirra garð á Instagram story og frétti ég að í seinni leik FC Árbæ – Skallagríms í Árbæ þá hafa verið niðrandi orð og blótsyrði kallað inná völlinn sem voru beind að leikmönnum Skallagríms úr áhorfendapöllunum. Hef ég haft samband við KSÍ sem eru nú með málið á sínu borði og munu höndla málið innan sambandsins.

KSÍ sendir póst til FC Árbæ og óska eftir svörum. Í óbeinum orðum sem ég fékk þá átti ég einfaldlega að hafa samband við klúbbinn og óska eftir fjarlægingu mynda sem þeir notuðu af mér í leyfisleysi, þó það hefði verið gert hefði það ekki tekið frá þann áróður og athlægi sem ég hafði orðið þegar fyrir. Myndirnar sem þeir birtu af mér hafa nú verið fjarlægðar af Instagram reikning klúbbsins sem og myndir sem vistuð voru í story hjá þeim.

Mér hefur verið bent á að það sem ég hef orðið fyrir að hálfu FC Árbær er einhvað sem varir við brotum á lögum alþýðunnar gagnvart minni persónuvernd.

Ég skrifa þetta því að enginn og ég meina enginn á að þurfa að fá svona áreiti á sig, þannig að ég vill standa upp fyrir þá dómara og aðra sem lent í svona hafa og segja frá er félög, leikmenn eða aðrir níðast á ykkur og ykkar persónulega lífi. Látum í okkur heyra því fyrir svona hegðun líð ég ekki og mun ég ávallt standa upp og segja frá.

En það sem að mig langar hér með að óska eftir er að FC Árbær komi með opinbera afsökunarbeiðni og útskýri mál sitt til hins ýtrasta. Fyrir mér sýna þeir sitt rétta andlit hvort sem þeir koma með afsökunarbeiðnina eða ekki.

Davíð Guðmundsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna