fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
433Sport

Sjáðu myndband sem aðdáandi tók er Rooney gekk upp á hótelherbergi með stúlkunum – Stjarnan í ansi annarlegu ástandi

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 27. júlí 2021 09:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt myndband frá kvöldi Wayne Rooney, fyrrum knattspyrnumanni og nú knattspyrnustjóra, með þremur 21 árs gömlum stúlkum á djamminu um helgina er nú í dreifingu. Myndbandið er af því þegar Rooney og stelpurnar gengu að hótelherbergi þeirra síðarnefndu.

Sjá einnig: Giftur Rooney fór ofurölvi á hótelherbergi með tvítugum stúlkum – Móðir einnar þeirra tjáir sig

Sjá einnig: Rooney hringdi á lögreglu vegna myndanna – Segist ekki hafa gert neitt rangt

Rooney, sem er giftur og á fjögur börn, sem og nokkrir félagar hans eru sagðir hafa boðið stúlkunum á VIP-borð sitt á skemmtistaðnum Chinawhite í Manchester á laugardag.

Eftir á er Rooney sagður hafa farið á hótelherbergi stelpnanna ásamt tveimur félögum sínum. Þó kemur fram að ekkert af kynferðislegum toga hafi átt sér stað. Rooney er hins vegar sagður hafa hrósað stelpunum mikið fyrir útlit sitt.

Rooney er svo sagður hafa dáið áfengisdauða í stól á hótelherberginu. Þá fóru stelpurnar að atast í honum. Ein þeirra tók til að mynda mynd af sér þar sem hún rak rassinn á sér í andlit Rooney.

Hann vaknaði svo í gærmorgun á hótelherberginu. Hann var fljótur að láta sig hverfa. Í kjölfarið deildu stelpurnar myndum af honum frá kvöldinu áður á samfélagsmiðlum. Þær urðu fljótar að dreifast út um allt.

Rooney á svo daginn eftir að hafa kvartað til lögreglu vegna myndanna þar sem þær voru teknar án hans samþykkis. Hann er einnig sagður harður á því að hann hafi ekki gert neitt rangt.

Myndbandið sem nú er í dreifingu má sjá með því að smella hér. Það sýnir að Rooney var virkilega ölvaður þetta kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum
Góð tíðindi af Orra
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fer frítt frá Liverpool

Fer frítt frá Liverpool
433Sport
Í gær

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu
433Sport
Í gær

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift