fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Kata Jak fór ekki eftir eigin reglum í gær – „Þegar reglurnar gilda um suma“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. ágúst 2021 08:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KR vann 6-0 stórsigur á Víking R. í Vesturbænum í Lengjudeild kvenna í gær en Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra var á meðal þeirra sem mættu á völlinn. Það kemur fram á Fótbolta.net.

Eins og knattspyrnuáhugafólk veit er grímuskylda á knattspyrnuvöllum landsins, eitthvað sem ekki tíðkast í öðrum löndum. Katrín gleymdi þeim reglum sem ríkja hér á landi.

Þær Aiden Hogan Keane, Unnur Elva Traustadóttir, Kristín Sverrisdóttir og Bergdís Fanney Einarsdóttir höfðu komið KR-ingum í 4-0 forystu í fyrri hálfleik. Sandra Dögg Bjarnadóttir og Karítas Ingvadóttir bættu við fimmta og sjötta markinu á 65. og 85 mínútu. KR er í 3. sæti deildarinnar með 33 stig eftir 15 leiki, tveimur stigum frá FH í efsta sæti. Víkingur R. er í 4. sæti með 22 stig.

Katrín sem fer fyrir ríkisstjórninni sem setur hömlur á líf fólks vegna COVID 19 faraldursins gleymdi eigin reglum þegar hún mætti á völlinn í gær. „Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir átti heldur ekki góðan dag þar sem hún mætti á völlinn en gleymdi grímunni,“ segir í umfjöllun Fótbolta.net um Katrínu.

Hafliði Breiðfjörð framkvæmdarstjóri fyrirtækisins ræðir málið á Twitter og segir. „Þegar reglurnar gilda um suma..“

Kolbrún Bergþórsdóttir gerði grímuskyldu á knattspyrnuvöllum að umtalsefni í leiðara Fréttablaðsins í gær. „Meðan grímuskylda er afnumin hjá öðrum Norðurlandaþjóðum er henni viðhaldið hér á landi. Á fótboltavöllum koma þar þúsundir saman án grímu meðan hér á landi eru fjöldatakmarkanir og grímuskylda undir berum himni. Hér á landi er ætlast til að fólk sitji með grímur í leikhúsi og á tónleikum án hlés. Hver er eiginlega skemmtunin í því að sitja í sal með fólki þar sem allir eru með grímu og líta út eins og zombíur? Samt eru einhverjir sem láta bjóða sér þetta. Aðrir kjósa fremur að sitja heima og dunda við að skipuleggja menningarferðir eða ferð á knattspyrnuleik til erlendra borga þar sem frelsið býr,“ skrifaði Kolbrún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann
433Sport
Í gær

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“
433Sport
Í gær

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina