Sadio Mane, leikmaður Liverpool, þurfti að fara meiddur af velli í kvöld gegn Wolves.
Það er mikið áfall fyrir félagið en Mane er einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins.
Mane entist ekki út fyrri hálfleikinn í kvöld og kom Takumi Minamino inná í hans stað.
Óvíst er hvort meiðsli Mane séu alvarleg en það verður að koma í ljós eftir leik.