Kormákur/Hvöt vann sterkan sigur í 4.deild karla í kvöld er liðið mætti ÍH í sjöttu umferð B riðils.
Kormákur gat komið sér í fjórða sæti deildarinnar og það tókst með 2-0 útisigri á Ásvöllum.
Gengi ÍH hefur verið heldur slakt í sumar og situr liðið í sjötta sæti riðilsins með þrjú stig.
Poppstjarnan geðþekka Kristinn Óli Haraldsson eða Króli, kom við sögu hjá ÍH í tapinu í kvöld.
Króli varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í leiknum en hann skallaði boltann í eigið net í seinni hálfleik.
,,Það má segja að þetta hafi verið b-o-b-a. Laust en boba engu að síður,“ skrifar aðdáendasíða Kormáks á Facebook.
Lagið B.O.B.A ættu allir Íslendingar að þekkja en það var risa slagari frá Króla og Jóa Pé.