Arnór Smárason hefur gert samning við lið Lillestrm í Noregi en þetta var staðfest í dag.
Þessi 29 ára gamli leikmaður kemur til Lilleström frá Hammarby þar sem hann hefur leikið síðustu tvö ár.
Arnór gekk í raðir Hammarby frá Helsingborg árið 2016 en hann hafði fyrir það leikið með Esbjerg í Danmörku og Heerenveen í Hollandi.
Arnór fór út árið 2004 til Heerenven en hann er uppalinn hjá ÍA á Akranesi.
Arnór mun nú reyna fyrir sér í Noregi en hann skrifaði undir samning við liðið sem gildir út þetta tímabil.