fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
433

Albert um númerið: Fékk ekki að ráða þessu

Victor Pálsson
Föstudaginn 18. maí 2018 14:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albert Guðmundsson er mættur til landsins á æfingar hjá íslenska landsliðinu en liðið hefur undirbúning fyrir HM.

Albert mun klæðast treyju númer fjögur á HM í sumar en hann segist ekki hafa ráðið því sjálfur.

,,Það er eitthvað sem ég hef ekkert um að segja. Ég fékk ekkert um það ráðið og þú verður bara að spyrja Sigga Dúllu að því,“ sagði Albert.

,,Ég sé hvort sem er ekki númerið sem ég er með á vellinum þannig ég einbeiti mér bara að því að spila fótbolta.“

,,Ég horfði á þetta þannig að ég hefði séð mig fyrir mér að vera valinn bara út af því til að vera klár þegar kallið kæmi í staðinn fyrir að þetta væri ekki að fara að gerast.“

,,Tíminn mun leiða í ljós hvað hlutverk mitt verður. Við byrjum á æfingu núna og leikmenn týnast inn með tímanum. Ég mun gera mitt besta til að hjálpa liðinu.“

,,Við eigum möguleika í öllum leikjunum að stela stigum eða stigi. Við erum komnir á þann standard að við förum í hvern einasta leik til að vinna, hvort sem það er Argentína eða Nígería.“

Albert fékk ekki margar mínútur með PSV á tímabilinu og vonast eftir stærra hlutverki á næstu leiktíð.

,,Ég hefði viljað fleiri mínútur á tímabilinu og ég þarf að setjast niður með PSV og ræða hvað hlutverk mitt verður á næsta tímabili.“

,,Ef þeir treysta mér ekki fyrir stærra hlutverki þá þarf ég kannski að leita eitthvað annað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Alfreð og Guðlaugur fallnir úr efstu deild í Belgíu – Freyr og félagar eiga möguleika

Alfreð og Guðlaugur fallnir úr efstu deild í Belgíu – Freyr og félagar eiga möguleika
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Besta deildin: Frábær endurkoma Stjörnunnar – Skoruðu fjögur gegn Skagamönnum

Besta deildin: Frábær endurkoma Stjörnunnar – Skoruðu fjögur gegn Skagamönnum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Nunez orðaður við óvænt félag – Gæti tekið við af markavélinni

Nunez orðaður við óvænt félag – Gæti tekið við af markavélinni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Viðar ekki í hóp á Akureyri – Magnús fullyrðir að þetta sé ástæðan

Viðar ekki í hóp á Akureyri – Magnús fullyrðir að þetta sé ástæðan
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Birti svakalega mynd og sannar það að hann er í sturluðu formi – Sjáðu hvað hann birti

Birti svakalega mynd og sannar það að hann er í sturluðu formi – Sjáðu hvað hann birti
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Mourinho næstur til að elta peningana?

Mourinho næstur til að elta peningana?
433Sport
Í gær

Gagnrýnir vinnubrögð Liverpool: Bjóst við að fá miklu meiri stuðning – ,,Var gríðarlega erfitt“

Gagnrýnir vinnubrögð Liverpool: Bjóst við að fá miklu meiri stuðning – ,,Var gríðarlega erfitt“
433Sport
Í gær

Hrafnkell: „Ég er ekki sammála þessu“

Hrafnkell: „Ég er ekki sammála þessu“