fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Neytendur

Vara við vinsælu fitubrennsluefni sem fæst víða á Íslandi

Rannsóknir tengja það við maníu og lifrarskemmdir – Efnið er meðal annars selt í apótekum hér á landi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 20. september 2016 21:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstöður nýlegrar bandarískrar rannsóknar sýna að vinsælt fæðubótarefni, sem selt er og markaðssett sem þyngdarstjórnunar- og fitubrennsluefni, geti verið varhugavert í notkun fyrir fólk sem ýmist hefur glímt við eða er með undirliggjandi geðsjúkdóm.

Efnið sem um ræðir heitir Garcinia Cambogia og hefur notið sívaxandi vinsælda víða um heim ekki síst vegna meðmæla frá sjónvarpslækninum dr. Oz og fjölmargra heimsþekktra einstaklinga á borð við Khloe Kardashian og Melissu McCarthy. Fáar vísindalegar sannanir eru þó fyrir virkni þess í þá veru að það hjálpi fólki að léttast og brenna fitu. Raunar hafa fyrri rannsóknir sýnt að ástæða sé til að ætla að neysla þess geti leitt til aukaverkana á borð við lifrarskemmdir og gulu svo eitthvað sé nefnt.

Hér á landi er Garcinia Cambogia-fæðubótarefnið selt í fjölmörgum verslunum og stórmörkuðum, meðal annars apótekum. Læknarnir sem eru í forsvari fyrir nýju rannsóknina, sem tók til þriggja einstaklinga sem allir þurftu að leita sér aðstoðar á geðdeild eftir að hafa notað efnið um stutta hríð, segja mikilvægt að bera kennsl á Garcinia Cambogia sem áhættuþátt, þó ómögulegt kunni að vera að segja efnið orsök veikinda fólksins.

Markaðssett sem undrapilla

Niðurstöður rannsóknarinnar birtust í fagtímaritinu Primary Care Companion for CNS Disorders en fyrir rannsókninni fór geðlæknirinn Brian Hendrickson við New York-Presbyterian sjúkrahúsið í New York-borg og kollegar hans.

Garcinia Cambogia er ávöxtur sem finnst í Suðaustur-Asíu og er sagður af umboðsaðilum og framleiðendum hafa verið notaður lengi sem fæða og lækningalyf. Ávöxturinn er sagður auka framleiðslu á serótónín í heilanum en að virkni hans megi rekja til efnisins HCA eða hýdroxýsýru sem bæli niður svengd og eyði sætuþörf. Garcinia hindri fituuppbyggingu í líkamanum og taki allan aukasykur og melti hann án þess að líkaminn setji umframmagn í fituforða – eins og það er orðað á vef umboðsaðilans hér á landi.

Garcinia Combogia hefur verið auglýst sem „undrapilla“ sem stuðli að þyngdartapi án þess að hugað verði að mataræði og hreyfingu.

Enduðu öll á geðdeild

Í rannsókn Hendrickson og félaga voru þrír einstaklingar látnir neyta Garcinia Cambogia í mánuð eða lengur. Allir fóru þeir þeir að sýna dæmigerð einkenni maníu. Þeir urðu óðamála, upplifðu mikilmennskubrjálæði, svefnþörf minnkaði, þau urðu afar pirruð og þurftu öll að leita sér aðstoðar.

Tvö þeirra, fimmtugur karlmaður og 34 ára kona, höfðu áður verið greind með geðhvarfasýki en höfðu verið lengi í jafnvægi. Maðurinn hafði verið greindur með geðhvarfasýki I, en hafði verið í jafnvægi í sex ár án lyfjagjafar. Tveimur mánuðum eftir að hann byrjaði í megrun og fór að taka tvær pillur af Garcinia Cambogia á dag var hann lagður inn á geðdeild í 16 daga með mikil einkenni maníu og geðhvarfasýkin hafði tekið sig upp á ný. Hann var útskrifaður með geðlyf og ráðlagt að forðast fæðubótarefnið.

Konan var með geðhvarfasýki II og hafði sömuleiðis verið í jafnvægi lengi. Eftir 4–6 vikur af hreyfingu, og neyslu á Garcinia Cambogia fór hún sömu leið og maðurinn.

Þriðji einstaklingurinn, 25 ára karlmaður, hafði ekki áður glímt við geðsjúkdóma. Hann hóf að taka 1–2 pillur af Garcinia Cambogia á dag og eftir tvo mánuði þurfti að leggja hann inn sömuleiðis. Fram kemur í rannsókninni að hann hafi, líkt og hin tvö, þjáðst af mikilmennskubrjálæði, oflæti, minnkaðri svefnþörf, hann hafi eytt um efni fram og verið óðamála. Síðar þróaði hann með sér vænisýki (paranoju) og ranghugmyndir. Hann var á geðdeild greindur með geðhvarfasýki I og útskrifaður átta dögum síðar með lyfjum og ráðlagt að forðast fæðubótarefnið.

Áhættuþáttur ekki orsök

Hendrickson og félagar leggja fram þá kenningu að efnið kunni valda manísku ástandi hjá einstaklingum sem glíma eða glímt hafa við geðhvarfasýki og kunni að kalla fram sjúkdóminn hjá fólki í áhættuhópi sem ekki hefur fundið fyrir einkennum.

Ástæðan kann að liggja í meintri virkni HCA í Garcinia Cambogia við að auka serótónínframleiðslu í heilanum sem fyrri rannsóknir, sem birst höfðu í Journal of Medical Toxicology, höfðu leitt í ljós. Of mikið serótónín geti raskað jafnvægi í heila þeirra sem veikir eru fyrir eða í áhættuhópi, en sömu manísku áhrif geta hlotist af notkun þunglyndislyfja og anabólískra stera, sem ganga til baka þegar notkun er hætt.

Rannsakendur viðurkenna því að í ljósi þess hversu margslungin manía geti verið sé ómögulegt að fullyrða að Garcinia Cambogia sé orsakavaldur. Að auki sé magn og skammtastæðir innihaldsefna mismunandi milli fæðubótarefna.

„Það er hins vegar mikilvægt að benda á Garcina Cambogia sem áhættuþátt. Fyrir tvo sjúklinga með geðhvarfasýki virtist efnið breyta gangi veikinda þeirra með því að eiga þátt í að framkalla veikindi þegar þau voru í jafnvægi. Í öllum þremur tilfellunum náðu einstaklingarnir jafnvægi eftir að hafa látið af neyslu Garcinia Cambogia og með hefðbundinni lyfjameðferð.“

Hendrickson og félagar segja ljóst að frekari rannsókna sé þörf til að leiða í ljós hugsanlegar geðrænar aukaverkanir Garcinia Cambogia.

Ekki áhættunnar virði

Neytendasíðan Consumer Reports hefur eftir lækni að niðurstöðurnar, þrátt fyrir alla varnagla, sýni að fæðubótarefni sem þessi séu ekki áhættunnar virði.

Vefsíðan greinir frá því að aðrar rannsóknir hafi sýnt tengsl milli neyslu á Garcinia Cambogia og gulu, lifrarskemmdar, sem endaði með að viðkomandi þurfti lifrarígræðslu, og einu dauðsfalli tengdu lifrarbilun. Vefsíðan afhjúpaði einnig, með upplýsingum sem fengust frá Lyfja- og matvælastofnun Bandaríkjanna (FDA) á grundvelli upplýsingalaga, að á tímabilinu janúar 2015 til maí 2016 hafi nærri 100 manns fundið fyrir einhverjum aukaverkunum eftir neyslu fæðubótarefna sem innihéldu Garcinia Cambogia.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“