

Rauði liturinn er óneitanlega tengdur órjúfanlegum böndum við drykkinn kók, eða Coca-Cola. Liturinn hefur verið einkennislitur drykksins frá upphafi og þekkir nánast hvert einasta mannsbarn vörumerkið, hvort sem fólk drekkur drykkinn eður ei.
En af hverju valdi Coca-Cola þennan rauða lit til að byrja með? Sumir hafa haldið því fram að liturinn sé tengdur jólasveininum sem birtist í fyrstu auglýsingu fyrirtækisins en svo er ekki. Málið er að kók var selt í tunnum fyrir einhverjum 130 árum síðan, í bandarískum apótekum. Áfengi var selt á sama hátt, en á þessum tíma var skattur á áfengi en ekki á gosdrykkjum. Því byrjaði fyrirtækið Coca-Cola að mála kóktunnurnar rauðar til að aðgreina þær frá áfenginu svo fyrirtækið þyrfti ekki að borga óþarfa skatta.

Liturinn festist á drykknum, en gaman er að bæta við að liturinn finnst ekki í neinum Pantone-litaskala. Hann er í raun blanda af þremur mismunandi rauðum litum. Leturgerð Coca-Cola er hins vegar hægt að finna á internetinu, en hún heitir Spencerian og hefur verið með fyrirtækinu síðan í byrjun síðustu aldar.