fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Nús/Nús: Heiðarlegt handverk og náttúrulegur lúxus frá Marokkó

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 15. febrúar 2019 14:00

NúsNús fjölskyldan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein skemmtilegasta verslun á Íslandi, NúsNús, býður upp á gullfallegar vörur frá Marokkó. Verslunin er fjölskyldufyrirtæki í orðsins fyllstu merkingu. „Við erum í samstarfi við dóttur okkar, Birtu og Othman, manninn hennar, sem búa í Marokkó með tvenna tvíbura. Við kynntumst handverki Marokkómanna í gegnum þau og okkur datt í hug að Íslendingar kynnu einnig að meta þessa fallegu muni,“ segir Sigríður Þóra.

Með tvíburana á bakinu

Samstarfið byrjaði fyrir þremur árum þegar Birta og Othman ferðuðust um Marokkó þvera og endilanga með eldri tvíburastelpurnar á bakinu. Þau fóru á milli framleiðenda og listamanna og fylgdust með þeim búa til fallega handgerða muni, sem einkenna marokkóska menningu. Við kolféllum fyrir handbragðinu, gerðum bein viðskipti við framleiðendurna og hófum innflutning á þessum dásamlegu vörum.“

Birta og annar tvíburinn.

 

Hamingjuverð!

„Allar vörur í versluninni eru handunnar úr náttúruefnum og það er dásamlegt að vera umkringdur svona fallegum og náttúrulegum vörum alla daga,“ segir Sigríður Þóra. „Okkar metnaður liggur í því að versla beint við framleiðendur. Það tryggir að handverksfólkið fái sanngjarnt verð fyrir vöruna. Þar sem við verslum flestallt milliliðalaust og leggjum eins lítið á og hægt er, þá náum við að halda verðinu sanngjörnu. Við köllum þetta „hamingjuverð“ því það er enginn að okra á neinum.“

100% náttúrulegar snyrtivörur

„Við flytjum einnig inn náttúrulegar olíur og krem frá Marokkó. Til að mynda 100% hreina arganolíu (Argania spinosa). Sjálf nota ég hana óspart enda má skipta henni út fyrir svo margar aðrar snyrtivörur. Hún virkar sem andlitshreinsir, hárnæring, andlitskrem, líkamskrem og margt annað. Einnig erum við með 100% hreint sheasmjör, unnið úr hnetu sheatrésins (Vitellaria paradoxa). Hrein guðsgjöf fyrir þurra húð og exem.“

Að vökva húðina með kaktusfræjaolíu

„Svo má ekki gleyma kaktusfræjaolíunni. Hún er unnin úr fræjum kaktustegundar (Opuntia ficus indica) sem vex í Marokkó. Það er magnað að kaktusfræjaolían inniheldur 150% meira E-vítamín en t.d. arganolía og því hentar hún einstaklega vel á húð sem er að eldast. Þegar þú berð olíuna á þig færðu þá tilfinningu að þú sért að vökva húðina. Þetta er kannski ekki skrítið þegar maður hugsar til þess að kaktus er planta sem þarf að þola sífellda þurrka. Því þarf hann að vera sérlega rakadrægur.“

Nánari upplýsingar og vefverslun má finna á nusnus.is

Instagram: nusnusihus

Facebook: nusnusihus

Funahöfði 17a, 110 Rvk.

Sími: 566-8682

Netpóstur: nusnus@nusnus.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum