fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Keilusamband Íslands: Spennandi alþjóðamót fyrir keppnisfólkið og skemmtileg utandeild fyrir almenning

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 8. desember 2018 08:00

Þorleifur Jón Hreiðarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Keila er vinsæl íþrótt og starfsemi Keilusambands Íslands er með blóma. Æfingar í keilu eru nú sóttar í sex íþróttafélögum á landinu en æfingagjöld eru með því lægsta sem þekkist í íþróttastarfi fyrir börn og unglinga. Keiluiðkun er fyrst og fremst skemmtilegt og heilbrigt tómstundagaman en fyrir þá sem vilja æfa af kappi og ná langt í íþróttinni eru spennandi viðburðir handan við hornið, meðal annars alþjóðleg mót ungmenna.

„Við höfum notið góðs af afreksstefnu stjórnvalda í íþróttum og höfum skrifað undir samning við afrekssjóð ÍSÍ. Ríkið leggur þar til nokkra fjármuni og það eru spennandi viðburðir framundan á næsta ári,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson, formaður Keilusambands Íslands, og rekur helstu stórmót næsta árs:

„Evrópumót ungmenna undir 18 ára aldri verður haldið í Vín í Austurríki dagana 6. til 24. mars. Þetta er stærsta sviðið fyrir þessa krakka í keilunni til að komast á og eftir miklu að slægjast. Í júní verður síðan heimsmeistaramót karla í München í Þýskalandi. Í lok ágúst verður heimsmeistarakeppni kvenna haldin í Las Vegas.“

Stefán Claessen ÍR

Heimsmeistaramót og Evrópumót eru haldin annaðhvert ár og raðast upp þannig að það víxlast á karla- og kvennamót. Það eru því alþjóðleg stórmót á hverju ári og Íslendingar senda ávallt keppendur á þessi mót.

„Rúsínan í pylsuendann er síðan Norðurlandamót ungmenna sem haldið verður í Egilshöll í um miðjan nóvember. Er þetta í þriðja sinn sem mótið er haldið hérlendis,“ segir Jóhann.

Ástrós Pétursdóttir, einn fremsi kvenkeilari landsins

Allar upplýsingar um æfingatíma einstakra félaga, æfingagjöld sem og fréttir af starfseminni almennt er að finna á vefnum kli.is og Facebook-síðunni Keilusamband Íslands

Utandeildin í keilu – hentar öllum

Utandeildin í keilu er skemmtilegur vettvangur fyrir fyrirtæki og aðra hópa. Keppt er í fjórum riðlum og keppir hver riðill einu sinni í mánuði. Keppninni lýkur síðan með úrslitakeppni í vor.

„Þetta er forgjafarkeppni og allir keppendur eru jafnaðir út. Þetta þýðir að byrjandi í keilu getur komið þarna inn og átt möguleika í keppanda sem er lengra kominn. Fyrst og fremst snýst þetta um að eiga skemmtilega stund saman,“ segir Jóhann.

Ungmennalandslið Íslands á Evrópumóti ungmenna 2017

Nánari upplýsingar um utandeildina er einnig að finna á vefnum kli.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum