fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Aðventuljóminn eykst með hverjum tónleikum

Kynning
Kynningardeild DV
Laugardaginn 8. desember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ljómi aðventutónleika hefur fylgt mér í rúma hálfa öld. Fyrst þegar ég söng sem barn með kórunum mínum í Hafnarfirði svo sem kórstjóri frá árinu 1981. Engin ljós eru skærari en góður samhljómur brosandi barna og kórfólks á aðventu og jólum. Þetta er uppáhaldstíminn minn í söng og innihaldsríkir trúartextarnir næra hug minn og sál. Myrkrið verður bara að nauðsynlegri umgjörð svo allt þetta fái meiri dýpt og mótvægi,“ segir Margrét Pálmadóttir, kórstjóri og stofnandi Domus Vox.

Domus Vox er söngskóli og kóraheimili átta mismunandi kóra. Vox feminae og Cantabile eru kvennakórar, hvor um sig telur um fimmtíu félaga. Domusdrengirnir er nýjasti kórinn, ætlaður drengjum frá sex ára til tíu ára. Kórinn tekur á móti nýjum drengjum á vorönn. Margrét Pálma, Þorsteinn Sigurðsson tenór og Jón Elísson píanóleikari eru aðalleiðbeinendur drengjakórsins.

Stúlknakórarnir eru fimm talsins og tilheyra allir Stúlknakór Reykjavíkur. Elsti hópurinn er Dömukórinn AURORA ætlaður 18 ára og eldri og stjórnað af Sigríði Soffíu Hafliðadóttur. Aðrir stjórnendur stúlknanna eru þær Guðrún Árný Guðmundsdóttir og Margrét Pálma. Stúlknakór Reykjavíkur mun syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands á árlegum jólatónleikum hljómsveitarinnar í Eldborgarsal helgina 15. og 16. desember n.k.

Alls syngja um 250 manns í sönghúsinu Domus Vox sem jafnframt er eina sönghúsið á Íslandi í eigu kvenna- og stúlknakóra.

Aðventutónleikar 8. desember

Tímamót verða næstkomandi janúar þegar nýr kórstjóri, Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað sópran, tekur við af Margréti sem aðalstjórnandi Vox feminae. Margrét verður að sjálfsögðu innan handar þar sem hún verður áfram listrænn stjórnandi sönghússins Domus Vox.

Þriðju aðventutónleikar hússins verða laugardaginn 8. desember kl. 17.00 í Háteigskirkju. Kvennakórinn Vox feminae flytur þar, undir stjórn Margrétar, fallega efnisskrá sem tilheyrir þessari árstíð. Einsöngvari er Hanna Björk Guðjónsdóttir sem jafnframt er deildarstjóri einsöngsdeildar Domus Vox. Hljóðfæraleikarar tónleikanna eru Arnhildur Valgarðsdóttir, Erla Rut Káradóttir, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og Emilía Rós Sigfúsdóttir.

Kvennakórinn Cantabile syngur svo létta aðventudagskrá JÓL Í KÖLDU LANDI, í Hannesarholti n.k. þriðjudag 11. desember kl. 20.00 og miðar á þá tónleika fást á Tix.is.

Innritun í alla kóra og í söngnám Domus Vox er í síma 511-3737

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum