fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Fraktlausnir: Sérfræðingar í hugsandi frakt

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 29. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í grunninn erum við dreifingarfyrirtæki í Reykjavík og erum mjög öflugir í dreifingu á vörum á höfuðborgarsvæðinu. Við sjáum um vöruhýsingu, gámalosun og heimakstur fyrir fyrirtæki á borð við Frakt flutningsmiðlun ehf. og Blue Water Shipping, í því felst meðal annars að tæma alla gáma sem koma til landsins og keyra vörur heim að dyrum til viðskiptavina þeirra. Einnig sjáum við um flutning fyrir Smyril Line Cargo og DB Schenker,“ segir Arnar Þór Ólafsson hjá Fraktlausnum.

Auk þess sinnir fyrirtækið umfangsmiklum vöruflutningum til og frá Flúðum og Keflavík. „Við getum flutt vörur fyrir hvern sem er og erum opnir fyrir samstarfi við bæði stærri og minni aðila. Við erum mikið í alls konar sérflutningum, til dæmis flytjum við mikið af límtrjám fyrir Límtré Vírnet,“ segir Arnar en fyrirtækið er afar vel búið ýmsum tækjum fyrir flutninga.

„Við höfum mikið úrval af tækjum, til dæmis sendibíla í öllum stærðum, gámalyftur, lengjanlega flatvagna, frystivagna með heilopnun, bílaflutningavagn, vélavagna, walking-floor vagn  og erum mikið í gámaflutningum. Auk þess eigum við vagna undir vélar og bíla sem við flytjum oft,“ segir Arnar, en samtals starfa um 20 starfsmenn hjá fyrirtækinu.

„Við erum mikið í því sem við viljum kalla hugsandi frakt. Við flytjum oft dýran og viðkvæman varning sem okkur er treyst fyrir og það er ekki sama hvernig farið er að. Þá sjaldan að eitthvert verkefni hentar okkur ekki þá afþökkum við það og vísum á samkeppnisaðila ef við vitum að þeir eru betur til þess fallnir. Markmiðið er góð viðskipti til langframa en ekki stundarhagur,“ segir Arnar.

Eigendur Fraktlausna hafa áratuga reynslu af flutningastarfsemi og fyrirtækið þykir veita afar góða og trausta þjónustu.

Í vöruhúsi félagsins á Héðinsgötu 1–3 sjá Fraktlausnir einnig um að taka á móti vöru til áframflutnings á Snæfellsnes og í Borgarnes fyrir BB og syni ehf. og Júlla Jóns í Borgarnesi.

Enn fremur taka Fraktlausnir að sér lestun gáma, sem og almenna vörudreifingu.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni fraktlausnir.is

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum