Egat er framsækið fyrirtæki sem flytur inn nuddbekki. „Við gefum okkur út fyrir að hafa allt fyrir þá sem starfa í heilsugeiranum. Þar á meðal nuddbekki, nuddsteina, steinapotta til að hita nuddsteina, nuddlök, andlitslök, nuddpappír, olíur, nuddolíuhitara, hitateppi, nuddbelti, snyrtibekki, óléttupúða, nuddsæti, þrýstihnúða og svo mætti lengi fram telja.
Nuddbekkir
„Við erum með gríðarlegt úrval af sterkbyggðum nuddbekkjum í mismunandi stærðum og þyngdarklössum allt eftir stærð eða þyngd kúnna eða hvort nuddarinn stundi nudd uppi á bekknum,“ segir Eiríkur Sverrisson, eigandi Egat. Hann mælir sérstaklega með bekkjum sem eru með memory foam því þeir veita auka stuðning fyrir kúnnann og stuðla að auknum þægindum. Að auki er Egat með rafmagnsbekki fyrir nuddara sem auðvelda þeim alla vinnu.
„Svo erum við einnig að flytja inn frábæra snyrtibekki fyrir snyrtifræðinga sem eru vel stillanlegir og er hægt að hækka og lækka með rafmagnslyftu,“ segir Eiríkur.
Saunaklefar
„Einnig erum við að flytja inn infrarauða saunaklefa í mismunandi stærðum þar sem hægt er að stilla hitastigið allt frá 30°C-75°C. Það er þá yfirleitt við 60-75°C sem við förum að svitna meira inni í svona saunaklefum,“ segir Eiríkur. Klefarnir eru úr rauðum sedrusviði og með iljahitara í gólfi, útvarpi eða bluetooth tengingu og möguleika á litaljósmeðferð.
Togbekkir
Meðal þeirra vara sem Eiríkur hefur tröllatrú á er togbekkurinn góði. „Þetta er sannkallað töfratæki og með undraverðum hætti kemur hann bakinu þínu í lag. Togbekkur hefur ótrúlega góð áhrif á hryggjaliðina og getur linað bakverki til muna. Auk þess er hann góður við allskyns bakvandamálum, losar um stress og eykur liðleika og hreyfigetu,“ segir Eiríkur.
Allt að 34.000 kr. afsláttur
„Þess má geta að ég er með rosalega góðan afslátt einmitt núna á miklu magni vara á vefsíðunni. Allt að 34.000 krónur eru slegnar af heildarverðinu. Hyggst ég halda út þessum afslætti fram til 15. nóvember.
Nánari upplýsingar má nálgast á egat.is og www.egat.is/infraredsauna.html
Langholtsvegi 168
Sími 8626194
Vefpóstur: egat@egat.is eða eirikursv@simnet.is