fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Heimilislíf: Tyrknesk handklæði og fleiri eðalvörur

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 14. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimilislíf (heimilislif.is) er ný vefverslun sem selur tyrknesk handklæði, ilmkerti, ilmstangir og náttúrulegar húðvörur á góðu verði.

Tyrknesku handklæðin eru mikil gæðavara: Þau eru úr mjúkri 100% tyrkneskri bómull og eru til í nokkrum mynstrum og litum. Einnig er hægt að nota þau sem teppi.

Ilmkerti og ilmstangir frá Skye Candles eru handunnar vörur og til í mörgum litum og eru í fallegum, litríkum umbúðum. Jólailmurinn í línunni er dásamlega hátíðlegur.

Náttúrulegar húðvörur

Húðvörurnar frá Odylique eru náttúrulegar og án allra aukaefna. Þær eru handunnar á lítilli vinnustofu í Bretlandi. Odylique eru margverðlaunaðar vörur sem hreinsa, mýkja, skrúbba og gefa húðinni ljóma. Þær henta sérstaklega vel fyrir viðkvæma húð.

Sjá nánar um þessar og aðrar vörur á vefnum heimilislif.is þar sem hægt er að skoða í rólegheitunum. Þess má geta að frí heimsending er á pöntunum fyrir 15.000 krónur eða meira.

Jólamarkaðurinn í Hjartagarði

Það er þægilegt að versla á netinu og lítil yfirbygging veldur því að vefverslun á borð við Heimilislíf getur boðið hágæða vörur á hagstæðu verði. En það er líka gaman að þreifa á vörunni og eiga samskipti við þann sem selur. Þess vegna er gaman að segja frá því að Heimilislíf verður með myndarlegan bás á Jólamarkaðnum í Hjartagarði, Laugavegi 19 um helgina (14.–16. desember). Þar verða vörur verslunarinnar á sérstöku jólatilboði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum