fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Jólabækur Drápu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 10. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drápa er ungt bókaforlag sem leggur áherslu á að bjóða íslenskum lesendum gæðabækur frá öðrum löndum. Í jólabókaflóðinu að þessu sinni er Drápa með þrjár ólíkar bækur á frábæru verði, allt verðlaunabækur frá Svíþjóð.

 

PAX – Níðstöngin

 

Nú er loksins kominn til landsins vinsælasti barna- og unglingabókaflokkur Svíþjóðar undanfarin fjögur ár!

Viggó og Alríkur flytja enn einu sinni. Komnir til nýrra fósturforeldra, í nýjan bæ og í nýjan skóla. Þeir lenda strax upp á kant við skólafélagana og kennarana. En í þeim býr kraftur, sem þeir vissu ekki af. Þeir eru nefnilega stríðsmenn hins góða og munu berjast gegn fornsöguleglegum skepnum myrkraaflanna – með aðstoð Estridar og Magnars, gæslumanna bókasafnins.

Hörkuspennandi og vel myndskreyttar bækur fyrir 11–15 ára krakka sem gerast í nútímanum – með skírskotunum í goðsagnir og myrkraverur. Þannig kemur norræna goðafræðin meðal annars reglulega við sögu. Asa Larsson, hinn heimsþekkti krimmahöfundur, er annar tveggja höfunda. PAX – Níðstöngin er fyrsta bók í ógnarspennandi bókaflokki.

  • 3.990 kr.
  • 144 bls.

Handbók fyrir ofurhetjur – þriðji hluti: Alein

 

Það breyttist allt hjá Lísu þegar hún varð ofurhetjan Rauða gríman. Hún hefur öðlast áður ófundið sjálfstraust – en er samt ennþá einmana!

Hér er komin þriðja bókin í bókaflokknum um stelpuna sem allir lögðu í einelti – en varð svo óvænt ofurhetja. Bækurnar eru spennandi, hraðar og hjartnæmar um stelpu sem grípur til sinna ráða. Síðurnar eru fallega myndskreyttar og eru bækurnar aðgengilegar og góðar fyrir krakka sem vilja spennandi og auðlesnar bækur.

Bækurnar hafa ekki bara verið lofaðar sem góðar sögur fyrir börn, heldur líka vegna þess að þær skapa umræðu um einelti og hversu mikils virði vinir eru. Handbók fyrir Ofurhetjur, þriðji og annar hluti, voru valdar saman sem bestu spennubækurnar í Svíþjóð 2108, fyrir 6–11 ára krakka.

 

  • 3.390 kr.
  • 104 bls.

Norrænu goðin

 

Hér eru norrænu goðin komin fram á sjónvarsviðið í glæsilegri og eigulegri bók sem sýnir norrænu goðin í algerlega nýju ljósi. 

 

Johan Egerkrans er sænskur snillingur sem bæði teiknar og skráir textann. Hann hefur gefið sér góðan tíma og það fer ekki á milli mála að hann hefur kynnt sér viðfangsefnið út í æsar, bæði ígrundað goðsagnirnar og það sem um þær hefur verið skrifað. Hann leggur ekki á borð fyrir lesendur þurrt samansafn sagna úr gömlum alfræðibókum heldur vinnur textann upp á nýtt og raðar honum upp á aðgengilegan og spennandi máta. Þetta er allt öðruvísi en myndasögurnar um Goðheima og ólíkt öllum öðrum útgáfum sem hafa komið út. Þannig á það líka að vera. Þessar goðsagnir tilheyra öllum og þær halda áfram að lifa meðal okkar þegar við segjum þær hvert á sinn hátt.

Í Norrænu goðunum kynnumst við öllum persónum norrænu goðafræðinnar – hinum ólíku heimum ása, vana, jötna og fleiri – og fáum auk þess allar helstu sagnirnar um ævintýri goðanna. Bókin er tilvalin jólagjöf fyrir fólk á aldrinum 15–95 ára, ekki síst fyrir menntskælinga sem eru að læra um goðafræðina. Norrænu goðin fæst einnig á ensku.

 

  • 6.990 kr.
  • 160 bls. – stórt brot, strigaklædd kápa.

Þeim sem vilja kynna sér bækurnar frá Drápu er bent á drapa.is þar sem einnig er hægt að skoða og lesa nokkrar síður úr hverri bók.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum