„Eitt það jákvæðasta sem fólk sér við þessi tæki er að þau fá krakkana frá tölvuskjánum og til að hreyfa sig,“ segir Sigurður Valur Sverrisson, eigandi verslunarinnar Pingpong.is en þar er mikið úrval af klassískum tómstundatækjum, til dæmis billjardborð, borðtennisborð, pílukastsvörur, fótboltaspil og þythokkíborð. Mörg af þessum tækjum henta vel í bílskúrinn eða sumarbústaðinn og þeim fylgir allt sem þarf til að stunda þessa leiki, svo sem spaðar og kjuðar.
Hér gefur að líta nokkur dæmi um frábærlega skemmtileg tómstundatæki úr Pingpong en það er um að gera að koma í búðina og skoða úrvalið betur. Pingpong.is er til húsa að Síðumúla 35 (gengið inn að aftanverðu). Verslunin er opin virka daga frá kl. 12.30 til 18. Símanúmer er 568-3920 og netfang pingpong@pingpong.is. Vefsíða er á slóðinni pingpong.is.