fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Súpubarinn: Seðjandi súpur fyrir alla sem vilja hollara mataræði á nýju ári

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 5. janúar 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hátíðirnar eru að baki með þungum mat, fituríkum og sætum. Mjög margir huga að léttara mataræði en þá spillir ekki fyrir að sá matur sé líka bragðgóður. Það gildir um súpurnar á Súpubarnum, sem eru fjölbreyttar, vel kryddaðar og matarmiklar.

Súpurnar eru allar gerðar úr grænmeti og eru ýmist vegetarian eða vegan, að sögn Rakelar Þórhallsdóttur, eiganda Súpubarsins. Þrátt fyrir það eru grænmetisætur og veganfólk aðeins hluti viðskiptavina. Flestir koma einfaldlega til að ná sér í góða súpu.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Hann Ölli vinnur með um 50 uppskriftir og á hverjum morgni býr hann til sex súpur fyrir daginn,“ segir Rakel og vísar þar til súpumeistarans Örlygs Ólafssonar. „Tex-Mex- og Malasíu-súpan eru dæmi um súpur sem eru mjög vinsælar hjá okkur. Súpurnar okkar eru allar bragðmiklar en þær eru líka mjög ólíkar hver annarri. Þær eru mjög matarmiklar allar saman og við leggjum upp úr því að fólk geti borðað sig mett af súpunni,“ segir Rakel, en brauð frá Brauð og Co. fylgir með súpunum.

Súpubarinn býður jafnframt upp á eins lítra skammta af súpu sem fólk getur tekið með sér heim í kvöldmatinn: „Venjulega seljum við skammt fyrir einn, bæði take-a-away og til að borða á staðnum, en lítraskammturinn er hugsaður til að taka með sér heim í kvöldmatinn. Hægt er að geyma hann kaldan í ísskápnum þar til fólk er í stuði til að fá sér súpu, því þetta geymist vel.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Súpubarinn var fyrst opnaður að Borgartúni 26 og er sá staður opinn frá 11–15, með áherslu á hádegið. Fyrir rúmlega tveimur mánuðum var Súpubarinn síðan opnaður að Bergstaðastræti 4 og sá staður er opinn frá 11 á morgnana til 20 á kvöldin og frá 12–18 um helgar.

Þau opna síðan nýjan stað fljótlega, þar sem Hagavagninn hefur verið við Vesturbæjarlaugina. Sá staður verður með nokkuð öðrum áherslum en Súpubarinn og verður spennandi fyrir svanga sundlaugargesti og aðra áhugasama að kynna sér hvað þar verður á boðstólum þegar staðurinn verður opnaður – innan tíðar.

Sjá nánar: Súpubarinn á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum