fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Óviðjafnanleg stemning í morgunverðinum

Kynning

Kaffivagninn, Grandagarði 10

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 10. mars 2017 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er geysileg aukning hjá okkur í morgunverðinum. Þar spilar inn í að það eru svo fáir staðir opnir snemma á morgnana en hérna er opnað klukkan hálf átta. Hér er stundum fullt út úr dyrum og gestahópurinn spannar alla flóru mannlífsins, hér eru erlendir ferðamenn, ungt námsfólk og fjölmargir fastagestir í eldri kantinum. Þessi fjölgun hefur orðið án þess að við höfum verið að auglýsa morgunverðinn sérstaklega, orðsporið hefur borist víða og frábærar umsagnir á TripAdvisor hafa haft sín áhrif.“

Þetta segir Mjöll Daníelsdóttir sem rekur hinn fornfræga stað Kaffivagninn úti á Granda. Morgunverðarstemningin á Kaffivagninum þykir einstök og stundum er salurinn fullsetinn strax upp úr klukkan hálf átta á morgnana. Eitt af því sem gerir stemninguna einstaka er hópur fastagesta sem ávallt drekkur saman kaffi á morgnana:

„Þetta eru afskaplega flottir karlar, fágætir fuglar. Til dæmis hann Dagfinnur flugmaður sem er orðinn 91 árs. Svo er það lögreglustjóri úr Keflavík og hér er líka hann Bjössi Króna, Kristján Knútsson og margir aðrir gamlir og frægir spekingar,“ segir Mjöll.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Morgunverðarúrvalið er afar fjölbreytt: „Við erum með venjulegan gamaldags hafragraut og síðan lúxus hafragraut með chia-fræjum, jarðarberjum og bláberjum; við erum með reyktan lax með eggjahræru, egg og beikon, nýbökuð hveitihorn og rúnnstykki og margt fleira.

Kaffivagninn er opnaður klukkan hálf átta á morgnana og lokar klukkan 18. Segja má að dagurinn á Kaffivagninum skiptist í þrjá kafla: Morgunverðinn, hádegisverðinn og síðdegiskaffið. Töluverð endurnýjum hefur orðið á matseðlinum eftir að Mjöll og eiginmaður hennar, Guðmundur Viðarsson, tóku við rekstri staðarins árið 2013, en Guðmundur er matreiðslumeistari staðarins. Hádegisverðurinn hefur verið nútímavæddur:

„Við leggjum mikla áherslu á fiskrétti og erum á þessum skandinavísku nótum. Flestir fiskréttirnir okkar eru bornir fram á pönnum. Einn af þessum pönnuréttum má kalla aðalsmerki Kaffivagnsins en það er þorskhnakki, gratíneraður með rækjum og béarnaise-sósu, Julian-grænmeti og kartöflum. Þetta er afar vinsæll réttur. Síðan erum við með gömlu góðu réttina sem við förum með upp á næsta stig. Þar má nefna plokkfisk, fiskibollur, bleikju og fiskisúpu. Þá erum við með smurbrauð með rauðsprettu en fyrir þá sem alls ekki vilja fisk þá bjóðum við líka upp á smurbrauð með roast beef sem við poppum dálítið upp.“

En jafnframt þessu heldur Kaffivagninn í sínar gömlu hefðir og hefur því yfir sér „retro“ yfirbragð sem mörgu yngra fólki þykir mjög eftirsóknarvert. Þannig er til dæmis vinsælt að fá sér uppáhellt kaffi og kleinu í eftir miðdaginn og „hvar annars staðar en hér færðu rjómapönnukökur,“ segir Mjöll.

Enn fremur eru allar kökur á Kaffivagninum bakaðar á staðnum fyrir utan tvær tegundir sem eru sérbakaðar fyrir Kaffivagninn.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Kaffivagninn er að Grandagarði 10. Opið er virka daga frá kl. 07.30 til 18.00 og um helgar frá 09.00 til 18.00. Heimasíðan er www.kaffivagninn.is og Facebook-síða er www.facebook.com/kaffivagninn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum