fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Límböndin hafa slegið í gegn

Kynning

Merkiverk býður upp á fjölbreytta þjónustu í merkingum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 10. mars 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Áprentuð límbönd eru einn stærsti þátturinn hjá okkur en við bjóðum upp á mjög hraða afgreiðslu, það getum við gert þar sem við prentum límbönd hér heima. Við getum einnig látið prenta erlendis fyrir mjög stórar pantanir en það getur verið hagstætt í sumum tilvikum. Við getum prentað allt að 4.000 rúllur af límbandi á sólarhring þannig að framleiðslugetan er mjög mikil. Hjá samkeppnisaðilum okkar er oft nokkurra vikna bið eftir límbandi sem er prentað erlendis.“

Þetta segir Bjarki Clausen hjá fyrirtækinu Merkiverk en sala á áprentuðum límböndum hefur farið mjög vaxandi hjá fyrirtækinu. Sá hluti starfseminnar fer fram undir heitinu Límbönd, en Merkiverk keypti það fyrirtæki árið 2009. Límböndin eru í senn afar gagnleg og um leið góð auglýsing fyrir fyrirtækið sem fær prentað merki sitt á rúlluna.
Bjarki heldur áfram:

„Við bjóðum líka sérprentuð límbönd frá aðeins 36 rúllum sem hentar mörgum smærri fyrirtækjum mjög vel. PVC-límböndin okkar eru þekkt fyrir styrk og gæði og þau skilja ekki eftir sig lím eða leifar þegar þau eru tekin af hlutum þegar þess þarf. En við heyrum oft að margir kvarta undan slíku varðandi límbönd frá öðrum birgjum, að lím verði eftir þegar límbandið er tekið af, sem er hvimleitt. Annar kostur við límböndin frá okkur er verðið, en það er ódýrara að kaupa sérmerkta PVC-límbandsrúllu af okkur en að kaupa óáprentaða rúllu í byggingavöruverslun eða stórmarkaði. Við seljum einnig aðrar gerðir af límbandi eins og PP, akrýl o.fl. Einnig límbyssur og strekkiplast.“

Merkiverk hefur meðal annars séð um merkingar fyrir veitingastaðinn Italiano
Merkiverk hefur meðal annars séð um merkingar fyrir veitingastaðinn Italiano

Merkiverk býður einnig upp á ýmsar aðrar sérmerktar vörur fyrir fyrirtæki, til dæmis penna og bolla. Einnig eru bílamerkingar veigamikill þáttur í starfseminni. „Við bjóðum bæði upp á heilmerkingu á bílum þar sem bílnum er pakkað inn og heilu myndirnar þekja bílinn, en einnig eru smærri merkingar í boði.“ Bjarki álítur að bílamerkingar séu afar góður og ódýr auglýsingamáti fyrir fyrirtæki og segist þekkja dæmi þess að merkingar á bílum viðskiptavina hafi borgað sig upp í auknum viðskiptum strax daginn eftir.

Alls konar bílamerkingar hjá Merkiverki
Alls konar bílamerkingar hjá Merkiverki

Merkiverk var stofnað árið 2007. Verkefnin eru fjölbreytt og af öllum stærðum. Stærstu verkefni eru merkingar fyrir fyrirtæki. Allt frá einföldum gluggamerkingum að sérsmíðuðum skiltum með sérhannaðri lýsingu. Þetta eru oft mjög stór skilti á álplötum, ljósaskilti eða seglskilti sem geta þakið heilu veggina á húsum. „Við merkjum mikið fyrir verslanir og veitingastaði, og ekki má gleyma öllum bátamerkingunum og umferðar- og bílastæðaskiltum í öllum formum og gerðum,“ segir Bjarni.

Hjá almenningi eru fatamerkingarnar hjá Merkiverk mjög vinsælar. „Það er bæði þannig að fólk kaupir af okkur merktan fatnað eða að við merkjum föt fyrir fólk. Þetta er misviðamikið, við erum með silkiprentun en skerum líka út í vínyl merki sem eru einfaldari og fljótlegri. Við bjóðum síðan upp á mikið úrval af bolum, háskóla- og hettupeysum og vinnufatnaði, en það er helsti fatnaðurinn sem við erum að merkja.“

Til að kaupa merktan fatnað hjá Merkiverk eða láta merkja föt er best að senda fyrirspurn á netfangið merkiverk@merkiverk.is.

Merkiverk er til húsa að Fossaleyni 14 í Grafarvogi. Símanúmer er 578-7733. Vefsíður eru www.merkiverk.is og www.limbond.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum