fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Framsækin og falleg hönnun – framúrskarandi og persónuleg þjónusta

Kynning

Heimili & Hugmyndir, Ármúla 26

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 24. febrúar 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimili & Hugmyndir er litrík og að sumu leyti framandi verslun sem selur húsgögn, húsbúnað og gjafavöru þar sem hafa verið farnar ótroðnar slóðir við hönnun, bæði hvað snertir stíl og efni. Verslunin, sem er staðsett að Ármúla 26 í Reykjavík, þykir afar falleg og litrík að skoða auk þess sem hún er lofuð víða fyrir afskaplega góða og persónulega þjónustu.

Meðal merkja sem Heimili & Hugmyndir býður upp er Flamant frá Belgíu, Lifestyle frá Hollandi og Nordal frá Danmörku. Meðal vinsælla vara í versluninni eru handgerð grísk rúm úr 100 prósent náttúrulegum efnum. Vörur í versluninni eru héðan og þaðan úr heiminum, bæði nýtt og gamalt, sem og handgert.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Heimili & Hugmyndir var stofnuð árið 2007 og síðan þá hefur verslunin vaxið mikið því fólk kann að meta þá fjölbreyttu, framsæknu og djörfu hönnun sem í versluninni er að finna. Eigendurnir eru tvenn hjón, Kristín Davíðsdóttir og eiginmaður hennar, Ólafur Kristjánsson, og Kristjana Ólafsdóttir og eiginmaður hennar, Guðmundur Davíðsson. Kristín Davíðsdóttir og Guðmundur Davíðsson eru auk þess systkini.

Viðskiptavinir verslunarinnar eru á öllum aldri en allt fólk sem hefur áhuga á tímalausri hönnun og einstökum og fallegum hlutum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Heimili & Hugmyndir hefur orð á sér fyrir að veita einstaklega góða og persónulega þjónustu. Mikið er lagt upp úr góðri ráðgjöf til viðskiptavina enda búa eigendur og starfsfólk yfir mikilli þekkingu á þeim vörum sem í boði eru.
Á Facebook-síðu verslunarinnar er áberandi hve margir viðskiptavinir lýsa sig ánægða með þjónustuna sem Heimili & Hugmyndir veitir. Einn þeirra skrifar eftirfarandi umsögn:

Sem áhugamaður um þjónustu verð ég að taka penna í hönd og hæla Heimili og Hugmyndum! Ég hygg að sjaldan eða aldrei hafi ég fengið jafn framúrskarandi þjónustu og hjá þessari verslun í gærkvöldi. Ég keypti sófa í gærmorgun, þau sendu hann heim á þeim tíma sem ég óskaði, en þegar ég opnaði umbúðirnar um kvöldið var ein löppin löskuð. Klukkan var orðin 18.00 þannig verslunin var lokuð. Ég skrifa á facebook síðu verslunarinnar athugasemd með upplýsingar um símann minn. Áður en hálftími var liðinn kom hringing frá eigandanum til að spyrjast fyrir um málið. Áður en annar hálftími var liðinn var eigandinn kominn heim við annan mann til þess að ganga í málið. Fullkomin viðbrögð og ofar væntingum! Til algjörrar fyrirmyndar. Með þakklæti, Þröstur.

Allir sem hafa áhuga á framsækinni hönnun og fallegu umhverfi ættu að líta inn í Heimili & Hugmyndir að Ármúla 26. Verslunin er opin virka daga frá kl. 11 til 18.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum