fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Forðastu þetta ef þú berst við aukakílóin

Sykur og unnið hveiti eru afurðir sem neyta ætti í hófi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 21. september 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ótal kenningar eru uppi um hvaða aðferð er best til að léttast. Eitt er þó alveg á hreinu: Ef þú innbyrðir fleiri hitaeiningar en þú brennir, þá þyngist þú. Ef við þú vilt léttast þarftu að neyta færri hitaeininga en þú brennir.
Þrátt fyrir að vísindin hafi enn ekki sett fram skothelda leið til að léttast eru nokkur matvæli sem fólk sem vill léttast ætti að neyta í hóflegu magni.

1. Franskar og kartöfluflögur

Kartöflur eru heilsusamlegar og mettandi, en unnir kartöfluréttir eru það sjaldnast. Flögur og franskar innihalda mikið magn hitaeininga. Þær eru svo góðar að það er auðvelt að missa tökin á neyslunni.


Mynd: Birtingur ehf / Sigtryggur Ari

2. Sykraðir drykkir

Sterk tengsl eru á milli þess að drekka sykraða drykki og þess að þyngjast. Þó að drykkirnir geti verið svalandi eru þeir ekki mettandi og þú munt ekki borða minna af mat í staðinn. Ef þú drekkur sykraðan gosdrykk mun það líklega verða hrein viðbót við neyslu hitaeininga þann daginn. Ef þú þarft að léttast er best að drekka bara vatn.


3. Hvítt brauð

Hvítt brauð er yfirleitt úr hveiti sem er mikið unnið og inniheldur auk þess mikinn sykur. Það getur fyrir vikið hækkað blóðsykurinn. Rannsókn sem meira en níu þúsund manns tóku þátt í leiddi í ljós að líkurnar á þyngdaraukningu og offituvandamálum jukust um 40 prósent hjá þeim sem neyttu tveggja brauðsneiða (120 gramma) á dag.


4. Súkkulaðistykki

Hér er um mjög sykraða og óholla vöru að ræða. Auk þess að innihalda mikinn sykur inniheldur súkkulaðistykki yfirleitt viðbættar olíur og mikið unnið hveiti. Fyrir vikið eru það stútfullt af kaloríum og inniheldur fá næringarefni. Ef þig þyrstir í sælgæti ættirðu að prófa að borða handfylli af hnetum í staðinn.


5. Ávaxtasafar

Langfæstir ávaxtasafar innihalda hreinan safa úr ávöxtum. Hér er yfirleitt um að ræða mikið unna vöru sem inniheldur mikið af sykri og oft svipaðan fjölda hitaeininga og sykraðir gosdrykkir. Flestir safarnir eru snauðir af trefjum og raunar er fátt sem minnir á ávöxtinn sem þeir eiga að vera gerðir úr.


6. Smákökur og kex

Bakkelsi á borð við smákökur inniheldur yfirleitt mikið af hvoru tveggja unnu hveiti og sykri. Þá innihalda þær gjarnan transfitusýrur. Það sama gildir um kexkökur. Þetta er ekki mettandi fæða og er slæm í miklu magni.


Mynd: 123rf.com

7. Bjór og aðrir áfengir drykkir

Í einu grammi af hreinu alkóhóli eru sjö hitaeiningar. Ekki hefur þó tekist að sanna að neysla áfengis geti stuðlað að þyngdaraukningu. Þvert á móti benda rannsóknir til að hófleg neysla víns geti leitt til þess að fólk léttist. En bjórinn er verri. Ef þú ætlar að drekka áfengi á annað borð – og vilt léttast – ættirðu að drekka vín í hóflegu magni, frekar en bjór.


Mynd: Reuters

8. Ís

Afskaplega gómsæt vara en afar óholl í óhófi. Yfirleitt er ís hlaðinn sykri og þannig fullur af hitaeiningum. Betri leið er að búa til sinn eigin, þar sem jógúrt eða ávextir koma að einhverju leyti í stað sykursins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum