fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Peugeot til Brimborgar

Kynning

Nýr sýningarsalur opnar föstudag 22. júlí með frábærum opnunartilboðum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. júlí 2016 14:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Föstudaginn 22. júlí opnar Brimborg nýjan sýningarsal fyrir Peugeot og hefur þar með formlega sölu Peugeot bíla á Íslandi. Brimborg mun bjóða alla bílalínu Peugeot með meiri búnaði en áður og á einstaklega hagstæðu verði.

Glæsileg opnunartilboð

Sýningarsalur Peugeot er til húsa að Bíldshöfða 8. Í tilefni opnunar verða mjög góð opnunartilboð í gangi á nýjum Peugeot bílum.

Ný notendavæn heimasíða Peugeot

Ný heimasíða Peugeot á Íslandi er komin í loftið. Lénið er www.peugeotisland.is. Við hönnun síðunnar var lögð áhersla á að skapa notendavæna síðu sem sýnir á skýran hátt flott úrval Peugeot bíla og þá þjónustu sem Peugeot á Íslandi hefur upp á að bjóða.

Lægra varahlutaverð og öflug verkstæðisþjónusta

Brimborg hefur þegar hafið innflutning á varahlutum í Peugeot bíla og hefur náð að lækka varahlutaverð með hagstæðum innkaupum beint frá framleiðanda. Verkstæðisþjónusta og ábyrgðarviðgerðir fyrir alla Peugeot bíla, hvort sem þeir eru fluttir inn af Brimborg eða öðrum, er einnig í boði hjá Brimborg.

Endurskipulagning hjá framleiðanda Peugeot

Það er bílasamsteypan PSA sem er framleiðandi Peugeot. PSA sem jafnframt framleiðir Citroën bifreiðar er annar stærsti bílaframleiðandi í Evrópu með sölu á um 3 milljónir bíla á heimsvísu árið 2015. PSA hefur einnig á sínum snærum lúxusbílamerkið DS en Brimborg reiknar með að kynna DS til sögunnar innan tíðar.

Í kjölfar viðamikillar endurskipulagningar hjá PSA verður framvegis meira samstarf á milli vörumerkjana tveggja Peugeot og Citroën. Í því felst meðal annars að setja undir einn hatt innflutning vörumerkjanna tveggja í hverju landi fyrir sig víða um heim. Með þessu næst töluverð hagræðing neytendum til hagsbóta.

Þessar breytingar hafa þegar verið gerðar í Noregi og víðar eru sömu breytingar í farvatninu. Hér á landi hafa þessar skipulagsbreytingar þau áhrif að Brimborg tekur yfir ábyrgð á innflutningi Peugeot bíla og varahluta vegna Peugeot til Íslands af danska fyrirtækinu K.W.Bruun sem hefur haft innflutningssamninginn (Importer) fyrir Ísland frá árinu 2005. Bernhard hefur verið söluaðili (Dealer) fyrir K.W. Bruun síðan árið 2005, en samningur Bernhard er óbreyttur til 31. ágúst 2017.

Meira úrval, lægra bílverð og lægra varahlutaverð

Mikil hagræðing mun verða af þessum breytingum þar sem Brimborg mun flytja inn bæði bíla og varahluti beint af framleiðanda eins og verið hefur með Citroën. Hagræðingin mun einnig ná til Citroën þar sem aukið flutningsmagn fyrir bíla og varahluti mun lækka kostnað og ýmis önnur hagræðing mun eiga sér stað. Viðskiptavinir munu í kjölfar þessara breytinga sjá meira úrval Peugeot bíla í boði á Íslandi, lægra bílverð og lægra varahlutaverð.

Hægt er að smella hér til að skoða þá Peugeot bíla sem þegar eru komnir til landsins á vegum Brimborgar.

Peugeot Ísland á Facebook

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum