fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Taktu til í lífinu með KonMari-aðferðinni

Regla á heimilinu og ró í huganum

Ritstjórn DV
Laugardaginn 16. júlí 2016 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Japanski tiltektargúrúinn Marie Kondo hefur sigrað heiminn svo til með aðferðunum sem hún boðar. Fyrsta bók hennar kom út árið 2011 og hefur farið sigurför um heiminn. Bókin hefur komið út í yfir 30 löndum, en hún kom út hérlendis fyrr á árinu undir heitinu „Taktu til í lífi þínu“. Marie Kondo var í fyrra ein þeirra sem Time-tímaritið taldi upp á lista 100 áhrifaríkustu einstaklinga í heiminum.

Hefur hrint af stað tiltektarbyltingu með skrifum sínum.
Marie Kondo Hefur hrint af stað tiltektarbyltingu með skrifum sínum.

Marie boðar einfalda aðferð til að endurskipuleggja heimilið, grisja dót og taka til í lífi sínu. Samkvæmt tiltektarheimspeki Marie felst galdurinn í að skoða hvern hlut og spyrja sig hvort hann veiti manni hamingju. Ef svo er mælir hún með því að halda í hlutinn, annars ekki. Þeir sem hafa tileinkað sér KonMarie-aðferðina segja að tiltekt af þessu tagi nái líka inn á við. Óreiða í huganum dvínar með betra skipulagi á heimilinu.

Hér eru 9 góð ráð úr smiðju Marie Kondo fyrir þá sem ætla að nýta sumarið til að endurskoða fataskápinn:

  1. Gefðu þér góðan tíma – þú vilt geta klárað verkið í einum rykk.

  2. Taktu allt út úr skápnum og settu í hrúgu á gólfið. ALLT.

  3. Settu svipuð föt í flokka. Þannig færðu betri yfirsýn og sérð betur hverju er ofaukið.

  4. Byrjaðu á að skoða föt sem þú notar ekki mikið þessa dagana. Ef þú ræðst í verkið núna væru það vetrarfötin.

  5. Þakkaðu þeim flíkum sem þú ákveður að losa þig við. Þær hafa á einhverjum tímapunkti veitt þér hamingju og þökkunum fylgir góð tilfinning.

  6. Ekki henda flíkum bara vegna þess að þú ætlar ekki að nota þær utan heimilisins. Það er líka mikilvægt að slappa af í fallegum fötum heima.

  7. Brjóttu saman það sem þú ákveður að eiga. Fallegur stafli er alltaf betri en hrúga.

  8. Leggðu staflana lárétt í skúffur. Þannig fæst betri yfirsýn.

  9. Hengdu upp þau föt sem þú telur að fari betur um hangandi. Hengdu þau léttustu og stystu lengst til hægri og þau þyngstu og síðustu lengst til vinstri. Þannig verður fataúrvalið þitt girnilegra og samræmið betra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum