fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Mamma veit best verður á sýningunni Heilsa og lífstíll í Hörpu helgina 29.-30. okt.

Kynning

Skilaboð frá Mamma veit best

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 27. október 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mamma veit best tekur þátt í einstakri fagsýningu fyrir alla áhugasama um heilbrigðan lífstíl í Hörpu
næstu helgi 29-30 okt. Sýningin HEILSA OG LÍFSTÍLL er fagsýning sem varpar kastljósinu að
heilsusamlegum lifnaðarháttum og forvörnum. Á laugardaginn ætlar Joylato að bjóða upp á ís og á sunnudaginn kemur hann Jói hjá organic.is og gefur smakk af hráfæðiskökum milli 13 og 16.

Okkar ástríða er að bæta heilsu fólks á öllum aldri. Við hvetjum fólk á öllum aldri til að huga að bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Við mælum með því að þið gerið litlar og varanlegar breytingar fremur en að reyna að umturna öllu á einni nóttu, því þá er hætta á að maður gefist upp.

Mamma veit best er fyrirtæki með þann tilgang að færa ykkur það bestra af lífrænum heilsuvörum, bætiefnum og snyrtivörum víðs vegar að úr heiminum. Nafnið vísar í þá trú okkar að Móðir jörð viti hvað er best fyrir börnin sín og hjá henni getum við fundið þær lausnir sem við leitum að. Með það að leiðarljósi gerum við okkar besta til að virða og heiðra móðurina sem við deilum öll, Jörðina.

Við vitum að það er heill frumskógur af bætiefnum í boði hér á landi. Við vitum líka að þau eru eins misjöfn og þau eru mörg og langt frá því að standa jafnfætis hvað gæði varðar. Þess vegna veljum við okkar vörur af kostgæfni til að tryggja að þær séu eins náttúrulegar, áhrifaríkar og umhverfisvænar og hugsast getur.

Okkar markmið er að þegar þið kaupið af okkur vörur getið þið verið örugg um að fá það besta fyrir ykkur sjálf og fjölskylduna hvað varðar gæði, hreinleika og virkni. Eins og fyrr segir bjóðum við upp á mikið úrval að hágæða heilsuvörum.

Þessar vörur verða á sýningunni Heilsa og lífstíll í Hörpunni helgina 29-30 okt:

Slökun Magnesíum duftið hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Duftið er leyst upp í vatni.
Sem dæmi um hin mörgu hlutverk magnesíum má nefna:
• Nauðsynlegt fyrir eðlilega vöðvavirkni – einkum vöðvaslökun
• Nauðsynlegt fyrir eðlilega taugavirkni – einkum taugaslökun
• Ómissandi þáttur orkuvinnslu í hverri einustu frumu líkamans
• Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfssemi hjarta og æðakerfis – spilar t.d. mikilvægt hlutverk í að viðhalda blóðþrýstingi
• Mjög mikilvægt fyrir beinheilsu – nauðsynlegt til að tryggja eðlilega beinþéttni og endurnýjun beina.

Dr. Bronner´s sápurnar: Lífrænar og umhverfisvænar. Bestu sápurnar fyrir viðkvæma húð.
• Vottuð lífræn og fair trade
• Algjörlega umhverfisvæn og niðurbrjótanleg
• 100% Post-Consumer (PCR) endurunnið plast í flöskunum og pappír í miðunum
• Fjölbreyttir notkunarmöguleikar, eina sápan sem þú þarft!
• Í hár-, sturtu- og handsápa – líka í andlitið og hentar vel til að fjarlæga farða
• Í þvottavélina, uppvaskið og heimilsþrif
• Drjúg og freyðir vel.

Kísill í dufti: Kísill er steinefni sem oft vantar í fæðuna okkar en líkaminn þarf til margra starfa.
Hvers vegna Kísill?
• Fyrir hár, húð, neglur, bein og liði – ómissandi uppbyggingarefni þessara vefja
• Fyrir meltinguna – hefur hreinsandi áhrif, sérstaklega öflug gegn óvinveittum sveppagróðri og sníkjudýrum og hjálpar þannig að koma jafnvægi á þarmaflóruna
• Fyrir heilbrigða heilastarfssemi – rannsóknir hafa sýnt fram á að kísill getur komið í veg fyrir uppsöfnun áls í heilanum og þannig varið hann fyrir hrörnun
• Fyrir hjarta og æðakerfi – kísill er mikilvægt uppbyggingarefni æðaveggja og getur þannig verndað æðakerfið fyrir æðakölkun

Sjáumst næstu helgi

Kær kveðja, starfsfólk Mamma veit best

Heimasíða
Bloggið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum