fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Frí umfelgun fyrir þá sem kaupa dekk

Kynning

Bílastofan opnar nýtt og glæsilegt verkstæði í Funahöfða 6

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 25. október 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílastofan hefur opnað nýtt og glæsilegt bifreiða- og dekkjaverkstæði að Funahöfða 6, Reykjavík, en áður hefur Bílastofan starfað með glæsibrag í Reykjanesbæ. Þar er hægt að fá dekk á hagstæðara verði en gengur og gerist án þess að slakað sé á gæðakröfum.

„Nagladekk undir bílinn kosta núna frá 44.000 krónum. Þetta er sama verð og þú borgaðir fyrir tíu árum. Við erum í þeirri aðstöðu að geta boðið dekk sem eru mun ódýrari en flest önnur dekk á markaðnum en um leið mjög vönduð. Hjá þeim aðilum sem hafa verið að skipta við mig hefur dekkjakostnaður fallið um meira en helming,“ segir Sigurður Friðriksson, eigandi Bílastofunnar, sem hefur verið starfandi í Reykjanesbæ í eitt ár, en fyrir nokkrum dögum opnaði Bílastofan nýtt og glæsilegt verkstæði að Funahöfða 6 í Reykjavík, beint á móti AB varahlutum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Dekkin sem Bílastofan býður eru frá Infinity og eru framleidd í einni af elstu dekkjaverksmiðjum í Kína. Verðið er frábært og gæðin rómuð en nákvæmar upplýsingar um verð er að finna á heimasíðunni bilastofan.is.

Í tilefni af opnum verkstæðisins að Funahöfða 6 býður Bílastofan nú fría umfelgun fyrir þá sem kaupa fjögur dekk undir bílinn. Það er líka hægt að koma með eigin dekk og láta umfelga fyrir um 5.000 krónur.

Enn fremur býður Bílastofan upp á það að bíllinn sé sóttur heim til eigandans og honum skilað aftur á nýjum dekkjum – gegn vægu gjaldi.

Bílastofan er í senn dekkjaverkstæði og almennt bílaverkstæði. Fyrirtækið hefur notið mikillar velgengni á Suðurnesjum og meirihluti af bílaleigum á svæðinu skiptir við Bílastofuna enda er mjög hagstætt að hafa dekkin frá Infinity undir bílum. Sigurður Friðriksson rekur sjálfur bílaleigur og þarf að hafa verkstæði til að halda þeim bílum við. Starfsmenn á Bílastofunni að Funahöfða eru fjórir.

Bílastofan er með negld dekk, ónegld dekk og heilsársdekk og býður jafnframt upp á burðardekk á hagstæðu verði en það færist í vöxt að notendur þungra atvinnubíla leiti til Bílastofunnar varðandi dekk undir bílinn, til að lækka kostnað um leið og gæði eru tryggð.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Bílastofan í Reykjanesbæ er staðsett að Njarðarbraut 11 í Reykjanesbæ en í Reykjavík að Funahöfða 6 eins og áður segir. Opið er virka daga frá kl. 8 til 17 og á laugardögum frá 10 til 14. Símanúmer eru 562-1351 og 861-2319.

Nánari upplýsingar á Facebook-síðu Bílastofunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum