fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Margt enn á huldu í Braggamálinu: Óljóst um 70 milljónir – Borgin tvísaga um tölvupósta

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Mánudaginn 7. janúar 2019 15:15

Stefán Eiríksson borgarritari, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hrólfur Jónsson, fyrrverandi skrifstofustjóri SEA. Samsett mynd/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavíkurborg hefur ekki getið veitt DV svör um hvað var gert við meira en 70 milljónir króna í tengslum við braggann á Nauthólsvegi 100. DV hefur fjallað ítarlega um Braggamálið svokallaða undanfarna mánuði, málið snýst um að búið er að eyða 425 milljónum króna af skattpeningum borgara Reykjavíkur í að byggja bragga undir veitingastað og félagsmiðstöð fyrir stúdenta Háskólans í Reykjavík. Málið hefur skapað fjaðrafok innan veggja Ráðhússins í Reykjavík og rétt fyrir jól kom úr svört skýrsla Innri endurskoðunar Reykjavíkur um málið. Þar kom meðal annars fram að Skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar, SEA, sem átti að heyra undir Stefán Eiríksson borgarritara, hafi í raun heyrt undir Dag B. Eggertsson borgarstjóra, hafi nánast verið stjórnlaus.

Sjá einnig: Margar ósvaraðar spurningar í kringum Braggamálið

Skellti á blaðamann

DV hafði samband við Ólaf I. Halldórsson, fyrrverandi verkefnastjóra hjá SEA. Í skýrslunni kemur fram að Ólafur hafi engan veginn verið að sinna sínum skyldum í starfi. Vildi Ólafur ekkert tjá sig um málið og vísaði á upplýsingarstjóra Reykjavíkurborgar og skellti svo á blaðamann. DV hafði samband við Bjarna Brynjólfsson en hann kannaðist ekki við að hann ætti að svara fyrir Ólaf þar sem hann hefði sagt upp störfum hjá borginni í desember. DV mun fjalla ítarlega um braggamálið á næstu dögum.

Svara ekki hvað var gert fyrir 70 milljónir

Enn hafa ekki fengist svör frá Reykjavíkurborg, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir DV til þess að fá þau, um hvað nákvæmlega yfir 70 milljónir fóru í vegna uppgerðar á minjum. Á sínum tíma þegar málið var í hámæli sagði Bjarni Brynjólfsson, upplýsingarstjóri Reykjavíkurborgar, það hafa verið t.d. mjög dýrt að gera upp gólfið ásamt því að arinn hafi verið gerður upp. Einnig hafi burðarbitar verið notaðir. Þegar reikningar eru skoðaðir þá kemur í ljós að uppgerð á gólfi braggans kostaði rúmar þrjár milljónir króna og hlýtur þá listinn yfir þá hluti sem var gerður upp að vera langur.

Tvísaga um tölvupósta

Í samtali við DV sagði Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, að Innri endurskoðun borgarinnar hafi skoðað tölvupóstssamskipti á milli hans og Hrólfs Jónssonar, fyrrverandi skrifstofustjóra SEA. Í samtali við Innri endurskoðun borgarinnar sagði Dagur að það hafi ekki verið gert.

Þann 20. desember síðastliðinn, sama dag og skýrslan kom út bað DV um viðtal við borgarstjóra, enn hefur þeirri beiðni ekki verið svarað. Í haust sendi DV beiðni til Reykjavíkurborgar um að fá allan tölvupóst um samskipti Dags B. Eggertssonar og Hrólfs Jónssonar vegna Nauthólsvegar 100. Var svarið frá borginni á þá leið að enginn tölvupóstur væri til. Í Kastljósviðtali sagði borgarstjóri að til væri einhver tölvupóstur á milli hans og Hrólfs vegna Nauthólsvegar 100.

Ekki hefur verið útskýrt hvers vegna næsti yfirmaður Hrólfs Jónssonar, Stefán Eiríksson borgarritari, hafi ekki verið upplýstur um málið. Innri endurskoðun bendir á í skýrslu sinni að bein samskiptaleið hafi verið að milli Hrólfs og Dags B. Eggertssonar vegna ýmissa mála hjá borginni, en þeir segja báðir að engin samskipti hafi verið um framkvæmdir á bragganum, þrátt fyrir að þeir séu að vinna í sama skrifstofurými.

Árið 2015 skilaði Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar frá sér svartri skýrslu vegna starfsemi skrifstofu eigna og atvinnuþróunar. Kom þar fram að margar brotalamir væru í starfsemi skrifstofunnar og að mikið vantaði upp á ferla. Kom Innri endurskoðun borgarinnar með 30 tillögur um hvernig væri hægt að bæta starfsemi skrifstofunnar. Í skýrslunni um braggamálið er tekið sérstaklega fram að ef tillögur úr skýrslunni 2015 hefðu verið framkvæmdar hefði braggamálið aldrei getað átt sér stað. Borgin hefur ekki enn svarað af hverju ekki var farið eftir tillögum Innri endurskoðunar á þeim tíma.

Sex verkefni fram úr áætlun

Alls hafa sex verkefni Reykjavíkurborgarfarið fram úr upprunalegum áætlunum á undanförnum árum:

Bragginn við Nauthólsveg – 267 milljónir fram úr áætlun – Framkvæmdum ekki lokið

Mathöllin við Hlemm – 208 milljónir – Framkvæmdum ekki lokið

Aðalstræti 10 – 270 milljónir

 

 

Vitinn við Sæbraut – 75 milljónir – Framkvæmdum ekki lokið

Gröndalshúsið – 198 milljónir

Fjölbýlishús í Írabakka – 330 milljónir

Samtals: 1.348 milljónir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi