fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Hilmar var 21 árs þegar hann svipti sig lífi á Litla-Hrauni – „Ég var svo ónýt, ég var sár og reið, fannst ég hafa brugðist“

Auður Ösp
Miðvikudaginn 9. maí 2018 09:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef hvergi stutt það að fangar taki ekki út dóm fyrir sín afbrot. Ég vil hins vegar að lögð sé áhersla á að það sé hægt að skila þeim betri út í þjóðfélagið, þá með betri og skilvirkari geðlæknaþjónustu og öðru slíku sem má betur fara.“

Þetta sagði Ragnheiður Hilmarsdóttir í helgarblaði DV. Ragnheiður er móðir Hilmars Más Gíslasonar sem var 21 árs þegar hann svipti sig lífi í fangelsi árið 2007. Andleg líðan fanga hefur verið nokkuð í umræðunni að undanförnu, en skemmst er að minast þess þegar Styrmir Haukdal Kristinsson svipti sig lífi á Kvíabryggju þann 13. apríl síðastliðinn. Fráfall hans var annað sjálfsvíg fanga á innan við ári. Styrmir hafði sárlega þurft á sálrænni aðstoð að halda en fékk einungis viðtal við sálfræðing í gegnum samskiptaforritið Skype.

Hilmar Már fékk aldrei að hitta sálfræðing eða geðlækni á meðan hann sat á bak við lás og slá þótt hann hafi verið í brýnni þörf. Til þess að takast á við sorgina opnaði Ragnheiður bloggsíðu og skrifaði sögu sonar síns og hvað betur mætti fara varðandi sálgæslu fanga. Á þessum ellefu árum hefur ekkert breyst og það ber yfirvöldum ekki fagurt vitni.

„Son minn hef ég aldrei skammast mín fyrir og sér í lagi ekki nú þegar hann er látinn. Elsku hjartans strákurinn minn fyrirfór sér í klefa sínum á Litla-Hrauni síðastliðna nótt,“ skrifaði Ragnheiður þann 19. ágúst 2007.

Hilmar Már var 21 árs gamall þegar hann svipti sig lífi í fangelsi. Í annarri færslu skrifaði hún: „Hann var það sem fólk kallar óalandi. Hann braust inn í bíla. Hann stal bílum. Hann braust tvisvar inn í hús. Hann ók próflaus. Hann ók of hratt. Hann prufaði dóp. Hann prufaði líka vín. En hann var strákurinn minn og ég missti aldrei vonina um að hann myndi sjá að sér og hætta óþægðinni.“

Með hjarta úr gulli

Í helgarblaði DV kom fram að saga Hilmars væri að mörgu leyti dæmigerð fyrir ungan pilt sem leiðist út í afbrot: hann var greindur með ofvirkni og athyglisbrest og átti erfitt uppdráttar í skóla. Hann var misþroska, en að sögn Ragnheiðar var lítið um úrræði fyrir hann. Hann passaði hvergi inn í kerfinu. Hann kunni illa við áhrifin af ofvirknilyfjum og þurfti að finna leið til að fá útrás.

Þorlákshöfn
Ragnheiður Hilmarsdóttir, móðir Hilmars.

„Hilmar minn var þannig að hann kunni ekki að stjórna ofvirkninni sinni. Það hefði hann þurft að læra betur á. Í dag veit fólk mun meira um ofvirkni en það gerði. Hann var settur á lyf en það eitt er ekki nóg þegar ungir mann neita svo lyfjagjöf. Þegar hann hætti á lyfjunum þá var hann eins og blaðra, full blaðra sem maður sleppir áður en maður er búinn að binda hnútinn á hann. Blaðran fer um allt þar til loftið er búið.“

Hilmar var að hennar sögn ráðvilltur ungur maður, með hjarta úr gulli.

„Hann var krútt. Hann hringdi í mig flesta mæðradaga og sagði: „Til hamingju með daginn!“ Stundum vissi ég ekkert hvað hann var að tala um og þá flissaði hann og sagði: Mamma! Það er mæðradagurinn! Þetta tókst honum að muna, blessuðum. Hann kom oft við hjá mér í vinnunni og ég fékk knús. Enn horfi ég á ókunnuga bíla fyrir utan og sakna Himma.“

Hilmar var á tímabili vistaður á Stuðlum, en ekki vegna neyslu heldur vegna hegðunarvandamála. Fíkniefnaneysla var að sögn Ragnheiðar ekki vandamál hjá honum.

„Hann var aldrei í neinni stórvægilegri neyslu, hann var svo ofvirkur og það gekk svo mikið á hjá honum. Hann var að stela úr bílum, hann var mikill bíla- og græjukall. Hann braut oft af sér, en hann var ekki hættulegur. Hann var aldrei dæmdur fyrir ofbeldisbrot eða dópsölu.

Hún tekur fram að hún hafi aldrei reynt að hylma yfir brot Hilmars. Hann hafi átt allt sem hann var dæmdur fyrir, enda gekkst hann nær alltaf við brotunum.

Vistaður með ofbeldismönnum

Hilmar hlaut fyrst fangelsisdóm 19 ára gamall þegar hann fékk 45 daga skilorð fyrir nytjastuld. Þegar hann var 21 árs hafði hann hlotið alls 15 dóma fyrir ýmis brot, oftast var um að ræða smávægileg brot á borð við umferðarlagabrot eða þjófnaði. Hann afplánaði tvisvar sinnum dóm í fangelsi.

„Í raun var Himmi meinlaus en agalega vegvilltur. Ég ætla ekki að reyna að útskýra líðan móður þegar hún horfir á eftir ástkæru barni í fangelsi í fyrsta sinn. Ég var svo ónýt, ég var sár og reið, fannst ég hafa brugðist, vildi ekki vera mamma neins og var bara ómöguleg. Þetta er svo ekki eitthvað sem maður tekur til umræðu í fjölskylduboðum, ég fór bara ekki meðal fólks. Mín leið en ekki endilega rétt leið.“

Í maí 2007 var gert Hilmari  að sitja inni í þrjá mánuði, vegna ofsaaksturs. Hann sagði við mömmu sína að hann hefði ekki þorað að stoppa fyrir löggunni af því að hann var viss um að hann hefði drukkið of mikið.

Hann fór inn á Hraunið í júní en þar sem að þetta var hans þriðja afplánun var hann vistaður á hinum svokallaða lávarðagangi á Hrauninu, innan um dæmda morðingja og ofbeldismenn. Það gagnrýnir Ragnheiður harðlega.

„Þarna taka þeir þessa ungu stráka og hreinlega murka úr þeim lífið. Hann var þarna 21 árs gamall og þar að auki misþroska og því mikið eftir á sumum sviðum. Ungur og áhrifagjarn strákur innan um alla þessa sterabolta, hann verður auðvitað bara að engu.“

Hilmar hitti aldrei sálfræðing eða geðlækni á meðan hann sat í fangelsi. Nokkrum mánuðum eftir dauðsfall hans ritaði Ragnheiður á bloggið:

„Ég hef sagt ykkur að Hilmar var góðhjartaður, hann var stundum einum of góðhjartaður. Ef ég hefði til dæmis sagt honum að Jói Jóns væri vondur við mig og skuldaði mér aura þá hefði Hilmar brugðist við. Hann hefði ekki lamið Jóa en hann hefði farið og sótt eitthvað af eigum hans í bætur. Hálfgerður Hrói Höttur, á skakkan máta.

Í fyrra varð hann var við að systir hans var eitthvað blönk. Hann sendi vinkonur sínar með aura og keypti af henni bílinn. Hann bjargaði málum þar. Þá sat hann inni og fékk einmitt viðbótardóm meðan hann sat inni. Það fannst honum erfitt þá. Það sama var að gerast nú, núna gat hann það ekki og gafst upp.

Ragnheiður segir engan hafa séð fyrir að Hilmar myndi binda enda á líf sitt í fangelsinu. Á þeim tíma hafði hann afplánað sex vikur af tólf.

„Ég segi alltaf að hann hafi gefist upp. Ég heyrði í honum stuttu áður og fann að það var eitthvað að, hann var svo niðurdreginn. Venjulega var hann kátur og hress. En þetta grunaði engan.“

Greint var frá andláti Hilmars í fréttamiðlum undir fyrirsögninni: „Fangi svipti sig lífi á Litla-Hrauni.“ En Ragnheiður óskaði þess að Hilmars væri minnst fyrir annað en það eitt að vera fangi. Í sorgarferlinu tók Ragnheiður upp á því að halda úti bloggsíðu þar sem hún opnaði sig um reynslu sína. Skrifin reyndust vera hennar haldreipi og viðbrögðin létu ekki á sér standa; aðrir aðstandendur settu sig í samband við hana og deildu svipaðri upplifun. „Þarna sat ég uppi með tvö tabú. Annað var sjálfsvíg og hitt var það að vera móðir fanga. En um leið og presturinn hafði kvatt okkur þá ákvað ég að núna ætlaði ég ekki lengur að fela þetta, ég ætlaði að sýna fólki hvernig þetta er.“

Umfjöllunina í helgarblaði DV má nálgast í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Í gær

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Í gær

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt