Börnin höfðu leitað skjóls undir tré – Af 11 særðum eru 4 taldir í lífshættu
Eldingu sló niður í barnaafmæli í París seinni part laugardags. Afmælisgestir voru staddir í Parc Monceau í norðvesturhluta borgarinnar, þar sem veislan var haldin, og höfðu leitað skjóls undir tré þegar þeir urðu fyrir eldingu.
Alls særðust þrír fullorðnir, kona og tveir karlmenn, og átta börn á aldrinum sjö til 14 ára. Samkvæmt fréttastofu Sky eru fjórir taldir lífshættulega slasaðir.
Viðbrögð lögreglu eru sögð hafa verið til fyrirmyndar og hlúði hún vel að þeim særðu meðan aðrir voru fluttir á sjúkrahús. Óeinkennisklæddur slökkviliðsmaður hefur einnig hlotið hrós fyrir að koma til bjargar og veita skyndihjálp, þar á meðal hjartahnoð, ásamt því að vísa björgunarmönnum á vettvang.
„Án hans aðstoðar hefði farið mun verr á þessari ögurstundu,“ segir Eric Moulin, talsmaður slökkviliðsins, og bendir á mikilvægi þess að sem flestir læri að veita skyndihjálp.