fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Miðnæturhlaup Suzuki: Fyrir alla fjölskylduna

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 30. mars 2018 17:20

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðnæturhlaup Suzuki fer fram á sumarsólstöðum eða fimmtudaginn 21. júní. Hlaupið hefst og endar í Laugardalnum og að loknu hlaupi er öllum þátttakendum boðið í Laugardalslaugina. Þátttaka í Miðnæturhlaupi Suzuki er því uppskrift að frábæru sumarkvöldi fyrir alla fjölskylduna. Hægt er að velja á milli þriggja vegalengda, 5 kílómetra um Laugardalinn og síðan 10 kílómetra og 21 kílómetra skemmtilegar og krefjandi leiðir upp Elliðaárdalinn. Miðnæturhlaup Suzuki er hluti af hlauparöðinni Powerade Sumarhlaupin og gildir til stiga.

Erlendir hlauparar eru fjölmennir og koma sérstaklega til að upplifa miðnætursólina. Koma þeir frá 50 mismundandi löndum en flestir frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Þýskalandi. Í könnun sem send var á þátttakendur kom fram að 97% þeirra ætla að mæla með hlaupinu við vini og ættingja. Eru hlauparar hvattir til að skrá sig til leiks fyrir 13. apríl til að tryggja sér 20% afslátt af forskráningargjaldi.

Nánari upplýsingar eru að finna á marathon.is/midnaeturhlaup.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum