Vísað úr landi – Sagðist eiga eiginkonu, kærustu og hafa unnið svart
FréttirKærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa albönskum karlmanni úr landi og beita hann endurkomubanni. Fram kemur í úrskurði að maðurinn hafi sagst vera giftur en einnig eiga kærustu hér á landi. Viðurkenndi hann að hafa unnið hér á landi án þess að tekjur hans af vinnunni hefðu verið gefnar upp til skatts Lesa meira
Rúmenskum síbrotamanni sem sagður var byrði á félagslega kerfinu vísað úr landi
FréttirKærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa rúmenskum karlmanni úr landi. Hafði maðurinn hlotið nokkra dóma og komið marg oft við sögu lögreglu en hann hafði einnig verið tvisvar dæmdur í fangelsi í Noregi. Vísar nefndin einnig til umsagnar lögreglu þar sem fram kom að maðurinn hafi verið „byrði“ á félagslega kerfinu. Auk Lesa meira
Sendur til Íslands gagngert til þess að selja fíkniefni – Sagði „einhvern mann“ í miðbænum hafa gefið sér bíl
FréttirBirtur hefur verið á vef Landsréttar staðfesting á gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur yfir erlendum manni sem vísa á úr landi. Maðurinn neitaði að gefa upp dvalarstað sinn hér á landi og var ekki skráður í þjóðskrá. Þykir allt benda til að hann hafi verið sendur hingað í þeim tilgangi að selja fíkniefni en lögreglu þótti skýringar Lesa meira
Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi
FréttirLandsréttur staðfesti í liðinni viku gæsluvarðhaldsúrskurð yfir erlendum manni sem handtekinn var í kjölfar þess að hann beitti fyrrverandi eiginkonu sína ofbeldi. Hafði áður verið tekið ákvörðun um að vísa manninum úr landi en hann hafði lítið sinnt tilkynningarskyldu og dvalið á óþekktum stað. Maðurinn hefur hlotið nokkra refsidóma á þeim tíma sem hann hefur Lesa meira
Rekinn til Íslands eftir að hafa látið sig hverfa í tveimur löndum
FréttirLandsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir útlendingi sem til stendur að vísa úr landi. Fram kemur í úrskurðinum að maðurinn hafi látið sig hverfa bæði í Danmörku og Sviss þegar vísa átti honum til Íslands. Loks var honum fylgt hingað til lands af lögreglumönnum frá Liechtenstein. Maðurinn sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi í Lesa meira
Margdæmdum manni sem beðið hefur brottvísunar frá Íslandi í fimm mánuði sleppt úr gæsluvarðhaldi
FréttirLandsréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóm Reykjaness yfir manni sem vísa á frá landinu. Maðurinn kom hingað til lands á síðasta ári þrátt fyrir að vera í 10 ára endurkomubanni frá Schengen-svæðinu og var brottvísun hans frá landinu staðfest í desember síðastliðnum en hefur ekki enn komið til framkvæmda en maðurinn hafði verið í Lesa meira
Albanskur fíkniefnasali sem þóttist eiga kærustu þarf ekki að vera lengur á Íslandi
FréttirLandsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að albanskur maður sem grunaður er um fíkniefnasölu þurfi að halda sig á Íslandi og tilkynna sig alla virka daga á lögreglustöð. Þegar maðurinn var handtekinn í síðastliðnum mánuði fundust skilaboð í síma hans sem gáfu til að kynna að hann væri hér á landi til Lesa meira
Vissi ekki hvar á Íslandi hann dvaldi síðustu 3 mánuði
FréttirLandsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir erlendum manni sem grunaður er um ólöglega dvöl og atvinnustarfsemi hér á landi. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness kemur meðal annars fram að þegar lögregla hafði afskipti af manninum fyrir um viku hafi komið í ljós að hann hefði dvalið á landinu undanfarna 85 daga. Tjáði maðurinn lögreglu að Lesa meira
Á Íslandi án dvalarleyfis í sjö ár
FréttirLandsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem tekinn var við akstur án ökuréttinda en í kjölfarið kom í ljós að maðurinn hefur ekki dvalarleyfi hér á landi og segist maðurinn raunar aldrei hafa öðlast það frá því hann kom fyrst til landsins árið 2017. Úrskurður Héraðsdóms yfir manninum fylgir með dómi Landsréttar. Þar kemur fram Lesa meira
Fíkniefnasali dvaldi ólöglega á Íslandi í þrjú ár – Samtals 14 farsímar teknir af honum
FréttirMaður af erlendum uppruna var fyrir helgi dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir 6 mismunandi brot á fíkniefnalögum og 2 brot á útlendingalögum þar á meðal fyrir að hafa dvalið hér á landi á árunum 2020-2023 án dvalarleyfis og farið huldu höfði. Fíkniefnalagabrotin sem maðurinn var ákærður fyrir voru framin á árunum 2021-2023. Vörðuðu þau ýmist Lesa meira
