fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Innflytjendur

Biden opnar hliðin að Mexíkó fyrir hælisleitendum

Biden opnar hliðin að Mexíkó fyrir hælisleitendum

Pressan
23.02.2021

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að afnema „Vertu í Mexíkó“ stefnu Donald Trump, forvera hans í Hvíta húsinu, og heimila hælisleitendum að koma til Bandaríkjanna. Bandaríkin ætla að leyfa um 25.000 hælisleitendum, sem eru í Mexíkó, að fara yfir landamærin til Bandaríkjanna og vera þar á meðan hælisumsóknir þeirra eru til meðferðar. Með þessu hefur Biden tekið fyrsta Lesa meira

„Ef Evrópa heldur að innflytjendur séu vandamál núna – bíðið þar til eftir 20 ár“

„Ef Evrópa heldur að innflytjendur séu vandamál núna – bíðið þar til eftir 20 ár“

Pressan
19.01.2021

Það er vel þekkt að fólk reyni að komast til Vesturlanda í von um betra líf. Það eru yfirleitt pólitískar eða efnahagslegar ástæður sem hrekja fólkið að heiman í leit að betra lífi. En nú eru loftmengun og loftslagsbreytingar einnig að verða stór orsök fyrir því að fólk flytur sig um set. The Guardian skýrir frá þessu. „Tengslin á milli Lesa meira

Stór hluti þjóðarinnar telur hryðjuverkaógn aukast með auknum fjölda innflytjenda

Stór hluti þjóðarinnar telur hryðjuverkaógn aukast með auknum fjölda innflytjenda

Eyjan
03.12.2020

Á síðustu tuttugu árum hefur íslenskt samfélag gjörbreyst, flóttafólki og innflytjendum hefur fjölgað mikið. Almennt  er viðhorf Íslendinga til innflytjenda gott en þegar kafað er dýpra komi fram skoðanir sem geti valdið áhyggjum. Þetta er haft eftir Margréti Valdimarsdóttur, lektor við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, í Fréttablaðinu í dag. „Stór hluti Íslendinga trúir því að líkur Lesa meira

Finna ekki foreldra 545 barna sem voru tekin frá foreldrum sínum á bandarísku landamærunum

Finna ekki foreldra 545 barna sem voru tekin frá foreldrum sínum á bandarísku landamærunum

Pressan
22.10.2020

Lögmönnum hefur ekki tekist að komast í samband við foreldra 545 barna sem voru tekin frá foreldrum sínum á landamærum Bandaríkjanna á árunum 2017 og 2018. Talið er að mörg hundruð foreldrar hafi verið fluttir úr landi án barna sinna. Þetta kemur fram í skjölum sem voru lögð fyrir dóm á þriðjudaginn. CNN skýrir frá þessu. Lesa meira

Íslendingar umburðarlyndari gagnvart innflytjendum en áður

Íslendingar umburðarlyndari gagnvart innflytjendum en áður

Fréttir
24.09.2020

Á síðustu þremur árum hefur umburðarlyndi Íslendinga gagnvart innflytjendum aukist nokkuð. Þetta er þveröfug þróun miðað annars staðar í heiminum þar sem umburðarlyndi gagnvart innflytjendum fer minnkandi. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag og vísar í nýja heimskönnun Gallup. Íslendingar voru á toppnum þegar síðasta svona könnun var gerð 2016 en falla nú af honum og Lesa meira

Sænski forsætisráðherrann segir samhengi á milli innflytjenda og aukinnar afbrotatíðni

Sænski forsætisráðherrann segir samhengi á milli innflytjenda og aukinnar afbrotatíðni

Pressan
12.09.2020

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur margoft þvertekið fyrir að tengsl séu á milli innflytjenda og starfsemi glæpagengja í landinu. En nú hefur hann skipt um skoðun. Í umræðum í sænska þinginu á miðvikudaginn kvað við nýjan tón hjá Löfven þegar hann var spurður af hverju hann gæti ekki séð samhengi á milli mikils fjölda innflytjenda í landinu og Lesa meira

Fimmti hver Svíi vill ekki búa við hlið múslima eða fólks frá Afríku

Fimmti hver Svíi vill ekki búa við hlið múslima eða fólks frá Afríku

Pressan
29.07.2020

Um eitt prósent Svía telur vera neikvætt að búa við hlið Svía, kristins fólks eða gyðinga en þegar kemur að því að eiga nágranna sem eru frá Afríku, Miðausturlöndum eða eru múslimar þá eru tölurnar allt aðrar. Fimmta hverjum finnst neikvætt að búa við hlið fólks sem fellur undir fyrrgreindar skilgreiningar. Dagens Nyheter skýrir frá Lesa meira

Innflytjendur frá ríkjum utan Vesturlanda kosta Dani 690 milljarða á ári

Innflytjendur frá ríkjum utan Vesturlanda kosta Dani 690 milljarða á ári

Pressan
30.06.2020

Kostnaður Dana vegna innflytjenda frá ríkjum utan Vesturlanda og afkomenda þeirra var um 33 milljarðar danskra króna árið 2017. Það svarar til um 690 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Kostnaðurinn hafði þá lækkað um fjóra milljarða danskra króna frá árinu áður. Þetta kemur fram í nýju uppgjöri frá fjármálaráðuneytinu. Jótlandspósturinn skýrir frá þessu. Ráðuneytið segir að Lesa meira

Yfirlæknir leit á nafnalistann yfir COVID-19 sjúklinga og krefst nú svara

Yfirlæknir leit á nafnalistann yfir COVID-19 sjúklinga og krefst nú svara

Pressan
23.04.2020

Þegar Thomas Benfield, yfirlæknir og prófessor á smistjúkdómadeild Hvidovre sjúkrahússins í Kaupmannahöfn, skoðaði nafnalistann yfir innlagða COVID-19 sjúklinga tók hann eftir að fjöldi innflytjenda var ekki í samræmi við samsetningu danska samfélagsins. Miklu fleiri innflytjendur hafa hlutafallslega verið lagðir inn á sjúkrahús vegna veirunnar en Danir. Sama staða er uppi á smitsjúkdómadeildinni og gjörgæsludeildinni að Lesa meira

Trump ætlar að loka tímabundið á komur innflytjenda til Bandaríkjanna

Trump ætlar að loka tímabundið á komur innflytjenda til Bandaríkjanna

Pressan
21.04.2020

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, tilkynnti í nótt á Twitter að hann ætli að reyna að stöðva aðstreymi innflytjenda til Bandaríkjanna. Hann ætlar að gefa út forsetatilskipun sem leggur bann við komum innflytjenda til landsins á meðan COVID-19 faraldurinn geisar. Hann skrifaði að að vegna árásar ósýnilegs óvinar og þarfarinnar fyrir að vernda störf Bandaríkjamanna ætli hann Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af