fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Fékk 18 ára dóm eftir að 200 lík fundust í niðurníddu húsnæði

Pressan
Þriðjudaginn 17. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi eigandi útfararþjónustu í Colorado, kona að nafni Carie Hallford, í Bandaríkjunum hefur verið dæmd í 18 ára fangelsi fyrir alríkissvik. Eiginmaður hennar, Jon Hallford, hafði áður verið dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir sama mál.

Hjónin ráku útfararstofu í Colorado en óhætt er að ófögur sjón hafi mætt yfirvöldum þegar þau fengu ábendingu um að ekki væri allt með felldu í rekstri útfararstofunnar.

Tæplega 200 lík fundust falin í niðurníddu húsnæði, en hjónin höfðu tekið við meira en 130 þúsund Bandaríkjadölum frá syrgjandi fjölskyldum fyrir að sjá um útfararþjónustu, þar á meðal líkbrennslur.

Í stað þess að veita þjónustuna fengu sumir aðstandendur duftker sem reyndust innihalda steypublöndu. Í að minnsta kosti tveimur tilvikum kom einnig í ljós að rangt lík hafði verið grafið.

Carie játaði í ágúst sök í málinu og viðurkenndi að hún og fyrrverandi eiginmaður hennar, Jon, hefðu svikið viðskiptavini og haft af yfirvöldum tæplega 900 þúsund dollara styrk. Styrkurinn var veittur til að koma til móts við rekstrarvanda lítilla fyrirtækja á tímum kórónuveirufaraldursins.

Líkin fundust árið 2023 og vakti málið mikinn óhug, eðli málsins samkvæmt. Aðkoman var skelfileg og var allt morandi í meindýrum í húsnæðinu. Margir þeirra sem höfðu falið útfararþjónustunni umsjón með útför ástvina sinna hafa glímt við sektarkennd, skömm og alvarleg kvíðaeinkenni, að því er fram kemur í frétt AP.

Fjölmörg fórnarlömb mættu fyrir dóminn og hvöttu dómarann til að beita hámarksrefsingu. Ein þeirra, Kelly Schloesser, sagðist hafa beðið látna móður sína afsökunar á að hafa ekki gætt hennar betur.

Saksóknarar lögðu einnig áherslu á að fyrrverandi hjónin hefðu eytt hluta af neyðarlánum sem ætluð voru til reksturs útfararþjónustunnar í lúxusvörur, ökutæki, rafmyntir og fegrunaraðgerðir, í stað þess að nota fjármunina í rekstur fyrirtækisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum
Pressan
Í gær

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því