fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi

Pressan
Föstudaginn 12. júní 2026 22:00

AJ Hutto fyrir dómi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar lögregla kom að heimili fjölskyldu í smábænum Esto í Flórída sumarið 2007 virtist allt benda til hörmulegs slyss þar sem barn hafði drukknað í sundlaug. Innan fárra mánaða hafði málið hins vegar breyst í morðrannsókn – og lykilvitnið var aðeins sjö ára gamall bróðir hinnar látnu. Framburður unga drengsins varð lykilatriði í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna á þeim tíma og leiddi að lokum til þess að móðir hans var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir morð á dóttur sinni.

Drengurinn, AJ Hutto, sem í dag er orðinn hálfþrítugur, tjáði sig opinberlega í fyrra í fyrsta sinn frá því að leitt til lykta. Í viðtali við MailOnline sagðist hann enn standa fyllilega við þann vitnisburð sem hann gaf sem barn.

Dauðsfall sem breyttist í morðrannsókn

Málið á rætur að rekja til 8. ágúst 2007 þegar sjö ára stúlka, Adrianna Hutto, fannst meðvitundarlaus í sundlaug við heimili fjölskyldunnar í smábænum Esto í Flórída. Hún var síðar úrskurðuð látin.

Í fyrstu töldu rannsóknaryfirvöld að um skelfilega drukknun hefði verið að ræða af völdum slyss. Móðir barnanna, Amanda Lewis, sagði að dóttir hennar hefði dottið í laugina á meðan hún var að hreinsa burt skordýr af yfirborðinu. Frásögn hennar var í samræmi við það sem oft sést í slíkum málum þar sem ung börn farast í slysum við sundlaugar.

Adrianna Hutto

Rannsóknin tók hins vegar óvænta stefnu þegar AJ Hutto sagði yfirvöldum að móðir hans hefði vísvitandi sett systur hans í laugina eftir að hafa orðið reið út í hana.

Sú yfirlýsing varð upphafið að umfangsmikilli morðrannsókn.

Vitnisburður sem vakti heimsathygli

Þegar réttarhöldin hófust árið 2008 vakti það mikla athygli að ákæruvaldið skyldi byggja mál sitt að stórum hluta á vitnisburði barns.

Myndefni úr dómsal sýndi AJ, þá aðeins sjö ára gamlan, lýsa atburðum þessa örlagaríka dags af yfirvegun sem þótti óvenjuleg miðað við aldur hans. Framburður hans, ásamt öðrum sönnunargögnum sem ákæruvaldið lagði fram, sannfærði kviðdóm um sekt móðurinnar.

Amanda Lewis var í kjölfarið fundin sek um morð af yfirlögðu ráði og dæmd í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.

Málið vakti miklar umræður víða um Bandaríkin. Sérfræðingar ræddu meðal annars hversu áreiðanlegur vitnisburður barna gæti verið og hvort hægt væri að byggja jafn alvarlega sakfellingu á frásögn barns. Aðrir töldu hins vegar að einmitt vegna þess hve ungur AJ var hefði verið ólíklegt að hann gæti samið svo nákvæma sögu upp á eigin spýtur.

Fékk nýtt nafn og hóf nýtt nafn

Eftir réttarhöldin hvarf AJ nánast úr sviðsljósinu. Hann var ættleiddur, fékk nýtt nafn og hóf nýtt líf fjarri þeirri fjölmiðlaumfjöllun sem fylgdi málinu. Um árabil hefur lítið sem ekkert verið vitað um afdrif hans.

Málið tók mjög á.

Í viðtalinu sem birtist í fyrra sagðist hann aldrei hafa haft samband við líffræðilega móður sína eftir að hún var dæmd og hafi ekki áhuga á að endurnýja þau tengsl.

Hann segir jafnframt að hann hafi viljað halda nýrri sjálfsmynd sinni leyndri til að vernda eigið líf og koma í veg fyrir að gömul áföll rifjuðust upp.

Sagði frá því sem hann sá

Þrátt fyrir að 18 ár séu liðin frá dauða Adriönnu Hutto hefur málið aldrei horfið alveg úr umræðunni.

Amanda Lewis hefur alla tíð neitað sök og haldið því fram að dóttir hennar hafi látist af slysförum. Hún hefur ítrekað reynt að fá dómnum hnekkt fyrir dómstólum og samkvæmt bandarískum fjölmiðlum hefur hún nýlega ráðið nýtt lögfræðiteymi í von um að fá málið tekið upp að nýju.

AJ segir hins vegar að hans sýn á málið hafi ekki breyst með árunum.

„Ég sagði einfaldlega frá því sem ég sá,“ sagði hann í viðtalinu og bætti við að hann hafi ekki verið undir neinni pressu frá lögreglu eða rannsakendum málsins.

Þannig stendur hann enn við orð sín nær tveimur áratugum eftir að þau voru fyrst sögð í dómsalnum – orð sem breyttu lífi hans, móður hans og fjölskyldunnar allrar til frambúðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Melania vísar þessu á bug en fyrirsæta segist vita sannleikann

Melania vísar þessu á bug en fyrirsæta segist vita sannleikann
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Segir mörgum yfirsjást hvað Úkraínumenn eru að gera á Krím

Segir mörgum yfirsjást hvað Úkraínumenn eru að gera á Krím
Pressan
Í gær

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans
Pressan
Í gær

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma
Pressan
Fyrir 3 dögum

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“