fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Netanyahu reynir að sanna að hann sé hvorki dauður né gervigreind – Netverjar eru ekki sannfærðir

Pressan
Þriðjudaginn 17. mars 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samsæriskenning hefur gengið um netheima undanfarið þar sem því er haldið fram að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sé látinn. Samkvæmt kenningunni er Ísrael að halda þessu leyndu með því að nota gervigreind til að falsa myndir og myndskeið af forsætisráðherranum. Sönnunargögnin sem teflt hefur verið fram eru nú ekkert sérstaklega sannfærandi, en ástandið í heiminum er nú orðið þannig að það er erfitt að kveða svona kenningar í kút. Samkvæmt kenningunni á forsætisráðherrann að hafa fallið eða í það minnsta slasast alvarlega í árásum Írans.

Upphaf kenningarinnar hefur verið rakið til streymis frá blaðamannafundi Netanyahy á föstudaginn en netverjar töldu sig þar hafa séð forsætisráðherrann skarta um tíma sex fingrum á annarri höndinni, en gervigreindin varð fyrir nokkru fræg fyrir að eiga erfitt með að telja mennska fingur. Nýrri gervigreindir hafa nú náð tökum á fingratali en eftir lifir tortryggnin.

Þegar betur er að gáð þá voru fingurnir ekki of margir á myndbandinu heldur voru gæði útsendingarinnar á köflum ekkert sérstök og eins gæti lýsingin á svæðinu hafa blekkt augað. PolitiFact fór ítarlega yfir þetta í staðreyndavakt sinni og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um gervigreind að ræða.

Kenningin hefur ekki farið fram hjá Netanyahu sjálfum sem birti myndband á X í fyrradag til að sanna að hann væri á lífi. Þar sést hann á kaffihúsi og biður manneskjuna sem heldur á myndavélinni að telja fingur sína. Þetta dugði þó ekki netverjum sem eru þónokkrir sannfærðir um að þarna sé um annað gervigreindarmyndband að ræða. Hafa þeir bent á að hringur á einum fingri forsætisráðherrans virðist hverfa inn í húð hans, bakgrunnurinn þykir grunsamlegur, kaffið í bollanum sem Netanyahu heldur á sé grunsamlegt og margt fleira.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum
Pressan
Í gær

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því